Bar par í Reykholtsdal
Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir 1. mars nk. leikritið Bar par eftir Jim Cartwright. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, og er þetta þriðja skiptið í röð sem hann leikstýrir hjá UMFR. Leikendur, sem eru tólf talsins, eru á ýmsum aldri, sá yngsti 10 ára og sá elsti á óræðum aldri. Sumir að taka þátt í sinni fyrstu sýningu, en aðrir hafa leikið í hinum ýmsum verkum sem UMFR hefur sett upp undanfarna áratugi. Leikmynd, búningar og tæknileg útfærsla er í höndum félaga í UMFR. Leikritið Bar-par gerist á einu kvöldi á krá í smábæ á Norður-Englandi. Þangað eiga erindi ýmsir aðilar, fastagestir...
Sjá meira


