Karma fyrir fugla frumsýnt 1. mars
Þjóðleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt verk þann 1. mars í Kassanum. Verkið, Karma fyrir fugla, er eftir þær Kristínu Eiríksdóttur og Kari Ósk Grétudóttur sem báðar eru myndlistarmenntaðar. Karma fyrir fugla er í senn ljóðrænt og sálfræðilegt verk um afleiðingar ofbeldis, heljartök fortíðarinnar á sálinni, ranglæti og fegurð. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir en hún hefur á undanförnum árum leikstýrt í Þjóðleikhúsinu rómuðum uppfærslum á nýjum íslenskum verkum, Utan gátta og Svörtum hundi prestsins. Leikritið Karma fyrir fugla er frumraun höfundanna á sviði leikritunar en verkið hefur verið um nokkra hríð í vinnslu í skjóli leikhússins. Kristín hefur á undanförnum árum...
Sjá meira


