Author: lensherra

Óþekkur er ætíð anginn sá

Leikfélag KópavogsGutti og félagar eftir Örn Alexandersson byggt á kvæðum Stefáns JónssonarLeikstjóri: Örn Alexandersson „Gutti aldrei gegnir þessu, grettir sig og bara hlær…“. Þessar línur þekkja líklega allir Íslendingar sem komnir eru til vits og ára. Gutti er einn ódælasti drengurinn í íslenskri bókmenntasögu og nú má fylgjast með uppátækjum hans á fjölunum hjá Leikfélagi Kópavogs. Örn Alexandersson hefur þar sett saman barnaleikrit með söngvum, Gutti og félagar, byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum eftir Stefán Jónsson. Í leikskránni er spurt hvort að Gutti hafi verið dæmdur of hart í gegnum tíðina. Miðað við uppsetninguna í Kópavogi má segja...

Sjá meira

Skrifin um Djáknann á Myrká

Jón Gunnar Þórðarson skrifar um tilurð Djáknans á Myrká. Þegar ég kynntist bændunum úr Hörgárdal höfðu þeir hug á að afklæðast í leikritinu Með fullri reisn og vildu ráða mig til að leikstýra. Sú hugmynd var skondin og skemmtileg en ég vildi síðar setja upp Djáknann á Myrká. Það var samþykkt. Og nú er verkið að lifna við. Maður þarf ekki að vera lengi í Hörgárdalnum til að finna fyrir skáldagyðjunni, náttúran kallar á sögur. Getur það verið rétt að það sé einhver sérstök andagift í Hörgárdalnum? Hannes Hafsteinn frá Möðruvöllum, Kristján frá Djúpalæk, Ólöf frá Hlöðum, Vatnsenda-Rósa frá...

Sjá meira

Málþing um Kjartan Ragnarsson 4. mars

Mánudaginn 4. mars nk. stendur Leikfélag Reykjavíkur fyrir sínu árlega málþingi sem að þessu sinni fjallar um samtímalistamanninn Kjartan Ragnarsson, leikstjóra, leikskáld, leikara og frumkvöðul. Dagskráin er fjölbreytt, stuttir fyrirlestrar, pallborðsumræður, flutt brot úr leikverkum, tónlistaratriði og upptökur frá uppsetningum Kjartans. Auk listamanna Borgarleikhússins munu KK og  hljómsveitin 4 á palli taka þátt í flutningnum.  Kynntar verða heimildarmyndir um tvo leikara Leikfélagsins. Dagskráin hefst kl. 17.30 og er öllum opin. Fjórir fyrirlesarar munu fjalla um feril Kjartans: Hanna María Karlsdóttir, leikkona, Magnús Þór Þorbergsson, lektor, Sveinn Einarsson, fv. leikhússtjóri og Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri. Að loknum erindum verða pallborðsumræður, sem...

Sjá meira

LA frumsýnir Kaktusinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 1. mars Kaktusinn eftir þýska mannréttindalögfræðinginn Juli Zeh. Þetta er ólíkindalegt verk þar sem fjallað er á spaugilegan hátt um ótta, öryggisfíkn, raunveruleika og skáldskap. Það er leikhópur Leikfélags Akureyrar sem fara með öll hlutverk sýningarinnar, enn hann skipa Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA, leikstýrir verkinu. Ungur tyrknesk-ættaður lögregluþjónn, Kem, hefur aðstoðað leynilögreglumanninn Jochen við að handtaka meintan hryðjuverkamann. Hryðjuverkamaðurinn sem rekur rætur sínar til Kaliforníu og gengur undir nafninu Carnegie Gigantae er hins vegar grunsamlega líkur stórum kaktusi. Jochen heldur því fram að hann...

Sjá meira

Eyrnalangir og annað fólk á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur hefur á undanförnum vikum æft  fjölskylduleikritið, Eyrnalangir og annað fólk eftir þær systur, Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist er eftir Ragnhildi Gísladóttur. Leikritið gerist á Dalvík í dag og segir frá því þegar flóttamenn frá eyjunni Sebrakapra koma í bæinn með nýja siði og annað útlit en bæjarbúar. Frumsýning verður föstudaginn 8. Mars. Hvernig á að koma fram við svona fólk? Hvernig gengur að skilja þeirra menningu og mataræði? Hvernig skyldi þeim líða að vera komin á allt annan og öðruvísi stað í heiminum en þau eru vön? Á ýmsu gengur en allt fer vel að lokum....

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert