Author: lensherra

LA frumsýnir Kaktusinn

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 1. mars Kaktusinn eftir þýska mannréttindalögfræðinginn Juli Zeh. Þetta er ólíkindalegt verk þar sem fjallað er á spaugilegan hátt um ótta, öryggisfíkn, raunveruleika og skáldskap. Það er leikhópur Leikfélags Akureyrar sem fara með öll hlutverk sýningarinnar, enn hann skipa Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Hannes Óli Ágústsson. Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri LA, leikstýrir verkinu. Ungur tyrknesk-ættaður lögregluþjónn, Kem, hefur aðstoðað leynilögreglumanninn Jochen við að handtaka meintan hryðjuverkamann. Hryðjuverkamaðurinn sem rekur rætur sínar til Kaliforníu og gengur undir nafninu Carnegie Gigantae er hins vegar grunsamlega líkur stórum kaktusi. Jochen heldur því fram að hann...

Sjá meira

Eyrnalangir og annað fólk á Dalvík

Leikfélag Dalvíkur hefur á undanförnum vikum æft  fjölskylduleikritið, Eyrnalangir og annað fólk eftir þær systur, Iðunni og Kristínu Steinsdætur, tónlist er eftir Ragnhildi Gísladóttur. Leikritið gerist á Dalvík í dag og segir frá því þegar flóttamenn frá eyjunni Sebrakapra koma í bæinn með nýja siði og annað útlit en bæjarbúar. Frumsýning verður föstudaginn 8. Mars. Hvernig á að koma fram við svona fólk? Hvernig gengur að skilja þeirra menningu og mataræði? Hvernig skyldi þeim líða að vera komin á allt annan og öðruvísi stað í heiminum en þau eru vön? Á ýmsu gengur en allt fer vel að lokum....

Sjá meira

Djákninn á Myrká sýndur á Melum

Leikfélag Hörgdæla frumsýnir glænýtt íslenskt verk fimmtudagskvöldið 28. febrúar kl. 20.00 á Melum í Hörgárdal. Verkið er byggt á þjóðsögunni um Djáknann á Myrká og er eftir Jón Gunnar Th. sem jafnframt leikstýrir verkinu. Tónlistin er eftir Skúla Gautason og er samin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Þarna er á ferðinni klassísk ástar- og draugasaga sem gerist í Hörgárdalnum. Djákninn átti í tygjum við stúlku eina er Guðrún hét og kom hún frá Bægisá. Djákninn hafði boðið Guðrúnu til jólagleði en… 17 leikarar auk hljóðfæraleikara eru á sviði í sýningunni en alls hafa yfir 40 manns komið að uppsetningunni. Leikarahópurinn...

Sjá meira

Bar par í Reykholtsdal

Ungmennafélag Reykdæla frumsýnir 1. mars nk. leikritið Bar par eftir Jim Cartwright.  Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, og er þetta þriðja skiptið í röð sem hann leikstýrir hjá UMFR. Leikendur, sem eru tólf talsins, eru á ýmsum aldri, sá yngsti 10 ára og sá elsti á óræðum aldri. Sumir að taka þátt í sinni fyrstu sýningu, en aðrir hafa leikið í hinum ýmsum verkum sem UMFR hefur sett upp undanfarna áratugi. Leikmynd, búningar og tæknileg útfærsla er í höndum félaga í UMFR. Leikritið Bar-par gerist á einu kvöldi á krá í smábæ á Norður-Englandi. Þangað eiga erindi ýmsir aðilar, fastagestir...

Sjá meira

Aukasýning á Gutta og félögum

Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning á Gutta og félögum hjá Leikfélagi Kópavogs, sunnudaginn 3. mars kl. 16.00.  Uppselt er á sýningar laugardaginn 2. og 3. mars kl. 14.00. Gutti og félagar er byggt á Guttavísum og fleiri kvæðum Stefáns Jónssonar. Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Nánari upplýsingar á www.kopleik.is. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Auk Gutta eru aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert