Author: lensherra

Einþáttungahátíð í Borgarfirði

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga, sem haldinn verður dagana 3.-5. maí nk. í Reykholti í Borgarfirði, verður haldin einþáttungahátíð í félagsheimilinu Logalandi föstudaginn 3. maí. Hátíðin verður með tiltölulega hefðbundu sniði, hámarkslengd þátta er 30 mínútur. Frestur til að tilkynna þátttöku á hátíðinni er til 19. apríl. Ekki verða gerð sérstök eyðublöð fyrir þátttökutilkynningar heldur skal senda þær með tölvupósti á info@leiklist.is. Lengd hátíðarinnar og það hversu snemma hún hefst ræðst af fjölda sýninga og verður nánar auglýst síðar. Öll aðildarfélög Bandalagsins geta sent þætti, eins marga og þau vilja. Ef sýnt þykir að hátíðin sé of...

Sjá meira

Gæsahúð á Melum

Leikfélag HörgdælaDjákninn á MyrkáHöfundur og leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson Það er langt í frá leiðinlegt að dusta rykið af góðum drauga- og þjóðsögum okkar Íslendinga, rifja þær upp og kynna fyrir nýjum kynslóðum. Á Melum í Hörgárdal býður Leikfélag Hörgdæla upp á söguna af djáknanum á Myrká, sögu sem flestir kannast við og gerðist í Hörgárdalnum. Höfundur verksins, og jafnframt leikstjóri sýningarinnar, Jón Gunnar Th., prjónar við sjálfa þjóðsöguna og við sögu kemur meðal annars tröllskessan Geira, auk þess sem heyra má brot úr Gullna hliði Davíðs Stefnánssonar og erindi úr vísum Vatnsenda Rósu. Til þess að auðvelda áhorfendum...

Sjá meira

Sindri silfurfiskur á Akureyri

Leikfélag Akureyrar sýnir hið hugljúfa brúðuleikrit Sindri Silfurfiskur næstu tvær helgar. Þessi sýning hefur fengið margróma lof hvarvetna enda sérstaklega töfrandi og falleg. Í sýningunni er sérstök ljósatækni notuð til þess að skapa undurfallegan neðansjávarheim. Töfrandi kynjadýr hafsins svífa um og hrífa áhorfendur á öllum aldri. Sýningartími er um 40 mínútur. Ef maður leggur kuðung upp að eyranu heyrist í hafinu. Þannig segir kuðungurinn frá því hver hann var og hvar hann bjó. En það var eins og Sindri silfurfiskur vildi gleyma hver hann í raun og veru var. Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfiskar er löngu hætt að selja fallegu...

Sjá meira

Makalaus sambúð á Hólmavík

Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir gamanleikinn Makalaus sambúð eftir Neil Simon í þýðingu og leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar, þann 15. mars í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefst sýningin kl. 19.00. Alls eru 8 leikarar og hópur aðstoðarfólks sem taka þátt í verkefninu að þessu sinni. Leikfélagið stefnir að sýningarhaldi á fleiri stöðum en það mun koma betur í ljós síðar. Leikritið, sem heitir á ensku The Odd Couple, fjallar um ungan fréttamann sem hefur verið sparkað af eiginkonu sinni, og flytur inn með vini sínum íþróttafréttamanninum. Vinurinn er hinn mesti sóði, og er sambúðin hin kostulegasta á köflum þar sem sambýlingarnir læra...

Sjá meira

Saumastofan í Gnúpverjahreppi

Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja frumsýnir þann 16. mars leikritið Saumastofuna  eftir Kjartan Ragnarsson. Verkið var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur við gífurlegar vinsældir og nú er það komið í Gnúpverjahreppinn. Saumastofan er gamanleikrit með tónlist og söng ásamt dramatísku ívafi. Leikstjóri verksins er Svandís Dóra Einarsdóttir og sýnt er í félagsheimilinu Árnesi. Saumastofan var  skrifuð í tilefni af kvennaárinu 1975 sem náði hápunkti með kvennafrídeginum sama ár. Leikritið sló í gegn og var sýnt yfir 200 sinnum á 3 árum. Saumastofan var ádeila inn í þjóðfélagið á sínum tíma, þar sem staða konunnar innan feðraveldisins var miðpunktur ádeilunnar. Af...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert