Author: lensherra

Inntökupróf fyrir Rose Bruford College á Íslandi

Einn af fremstu leiklistar- og leikhússkólum í Evrópu, Rose Bruford College, sem býður upp á nám á öllum sviðum leikhúss, heldur inntökupróf á Íslandi. Margir Íslendingar hafa sótt nám við skólann í gegnum árin. Inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir fara fram í Hinu Húsinu, Reykjavík, 27. og 28. apríl, fyrir inngöngu í september 2013. Námið er lánshæft hjá LÍN.   Skólinn býður upp á nám til BA gráðu í: Acting Actor Musicianship American Theatre Arts (Acting) European Theatre Arts (Acting) Costume Production Creative Lighting Control Lighting Design Performance Sound Stage Management Scenic Arts Theatre Design Skólinn býður upp...

Sjá meira

Umsóknarfrestur í Leiklistarskóla Bandalagsins er til 15. apríl

Enn er hægt að skrá sig á öll námskeið í Leiklistarskóla Bandalagsins sem haldin verða að Húnavöllum í Austur-Húnavatnssýslu dagana 8.-16 júní í sumar. Námskeiðin sem boðið er upp eru Leiklist 2 sem Árni Pétur Guðjónsson kennir, Sérnámskeið fyrir leikstjóra hjá Rúnari Guðbrandssyni, Leikritun 1 í umsjón Karls Ágústs Úlfssonar og Sérnámskeið fyrir leikara sem Þórey Sigþórsdóttir kennir. Umsóknum skal skila á netfangið info@leiklist.is og senda ásamt eftirtöldum upplýsingum: Hvaða námskeið er verið að sækja um, nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, bæjarfélag, netfang og símanúmer. Þar sem krafist er undirbúningsnámskeiða eða reynslu skal láta ferilskrá fylgja umsókn. Frekari upplýsingar...

Sjá meira

Leikfélag Vestmannaeyja sýnir Grease

Um þessar mundir er Leikfélag Vestmannaeyja að sýna söngleikinn Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Frumsýnt var fimmtudaginn 28. mars og hefur verið uppselt á allar sýningar síðan. Sannarlega má segja að algert Grease æði hafi brotist út í Eyjum sem og víðar, en einnig er verið að setja söngleikinn upp á Hornafirði.  Hafa móttökur leikhúsgesta verið sérlega góðar frá gestum og mælt er með að fólk panti sér miða sem fyrst. Einnig er í boði pakkaferð fyrir fólk af fasta landinu sem hljóðar svo; gisting í eina nótt á Hótel Vestmannaeyjar, matur hjá Einsa Kalda, útsýnisferð um Heimaey í...

Sjá meira

Nýjustu fréttir á Norðurpólnum

Í sumar mun Norðurpóllinn leikhús missa húsnæði sitt. Eitthvað annað gott mun örugglega koma út úr því. Hópurinn mun halda ótrauður áfram að styðja við og skapa list á Íslandi. Ef þig langar að koma í eitt síðasta skiptið í leikhúsið þá erum við með góðar fréttir, nefnilega Nýjustu Fréttir. Nýjustu fréttir var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síðastliðinn október og var einnig hluti af „off venue“ dagskrá Iceland Airwaves hátíðarinnar. Hætt var að sýna verkið fyrir fullu húsi og færri komust að en vildu. Nýjustu fréttir fjalla um samband okkar við fréttir á myndrænan og gamansaman hátt. Sýningin var unnin...

Sjá meira

Brúðuloftið og Gilitrutt – bók, sýning og nýtt leikhús

Brúðuheimar fagna opnun á nýju leiksviði, Brúðuloftinu,sem er staðsett í aðalbyggingu Þjóðleikhússins. Brúðuheimar hafa átt frábært og farsælt samstarf við Þjóðleikhúsið til margra ára og nú er svo komið að Þjóðleikhúsið hefur boðið Brúðuheimum leiksvið sem bar heitið Leikhúsloftið til afnota og munu Brúðuheimar halda úti leikhúsi sínu þar næstu misserin, undir heitinu Brúðuloftið. Í tilefni opnunar á þessu nýja leikhúsi setjum við nú aftur upp hina margrómuðu sýningu um hana Gilitrutt en sýningin hlaut afburða dóma gagnrýnenda og Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins 2011. Samhliða uppsetningunni kemur sagan um tröllskessuna ógurlegu út á bók sem gefin er út af Forlaginu. Bókin...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert