Author: lensherra

Sólheimaleikhúsið sýnir Skilaboðaskjóðuna

Sumardaginn fyrsta frumsdýndi Sólheimaleikhúsið fjölskylduleikritið Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjórinn er Lilja Nótt Þórarinsdóttir leikkona sem útskrifaðist frá Leiklistarskólanum 2009 og hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhúsinu og sett upp eigin sýningar, nú síðast leikstýrði hún leikritinu Þrek og Tár á Selfossi. Skilaboðaskjóðan er bráðskemmtilegt og líflegt barnaleikrit með fallegum boðskap. Í leikritinu segir frá íbúum Ævintýraskógarins þar sem öll ævintýrin gerast. Þegar Náttröllið rænir Putta litla syni Möddumömmu og ætlar sér að breyta honum í tröllabrúðu þá taka allir höndum saman. Nú eru góð ráð dýr því það þarf að bjarga Putta áður en að sólin hverfur á bak...

Sjá meira

Síðustu sýningar á Nú er himneska sumarið komið

Föstudaginn 26. og sunnudaginn 28. apríl verða síðustu sýningarnar á verkinu Nú er himneska sumarið komið eftir Sigtrygg Magnason í Dillonshúsi á Árbæjarsafni. Leikstjóri er Una Þorleifsdóttir og leikarar eru Hjalti Rögnvaldsson og Svandís Dóra Einarsdóttir. Agnieszka Baranowska hannar búninga. Umfjöllunarefnið er ást langömmu og langafa höfundar, sem náði út yfir gröf og dauða. Hún lést úr berklum 28 ára að aldri en nokkru eftir andlát hennar byrjaði hönd hans að hreyfast og skrifa, þar sem hann sat við borð og fyrstu orðin voru ástarorð til hans að handan. Í verkinu fá áhorfendur að gægjast inn í stofu hjá...

Sjá meira

Leikfélag Sauðákróks sýnir Tifar tímans hjól

Í Sæluviku frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks glænýtt frumsamið leikverk í fullri lengd eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson með lögum eftir Geirmund Valtýsson. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Leikverkið verður frumsýnt á Sæluviku Skagfirðinga 28. apríl 2013. Í leikritinu er sögð saga af fjölskyldu úti á landi, sigrum hennar og sorgum. Tónlist er ríkur þáttur í þeirra lífi og ekki síst í lífi aðalpersónunnar sem er annar sonurinn á heimilinu. Hann kynnist böllunum, ástinni og sorginni. Hann flyst til höfuðborgarinnar, kynnist kostum hennar og göllum og kemst að því að grasið er ekki alltaf grænna hinum megin. Verkið er...

Sjá meira

Píslavottar án hæfileika í Tjarnabíói

Sænski leikhópurinn PotatoPotato frá Malmö leikritið Píslavotta án hæfileika í Tjarnarbíói dagana 25., 26. og 27. apríl. Terroristaklúbburinn er hljómsveit, ákall um breytingar, vilji til að varpa ljósi á það sem hefur verið hulið, þyrnir í augum, fagurfræðileg ákvörðun, tónlúppa og drifkraftur. Hljómsveitarmeðlimir fara út í beinar aðgerðir, semja lög, lesa um frelsishetjur og fá innblástur frá byltingum. En hverju eru þau tilbúin að fórna? Leikhópurinn PotatoPotato heldur áfram að rannsaka pólitískar aðgerðir (og aðgerðaleysi) í evrópsku samtíma með ögrandi sviðslist, og skoðar nú sérstaklega pólitíska þátttöku í norrænu paradísinni. Leikhópurinn fylgir eftir Danskjävlar – bedst i Europa, sem fjallaði...

Sjá meira

Allrasíðasta sýning á Gutta og félögum

Sýning Leikfélags Kópavogs á Gutta og félögum hefur gengið fádæma vel og uppselt á hverja einustu sýningu. Nú eru þó síðustu forvöð að sjá prakkkarann Gutta og félaga hans því allrasíðasta sýning verður sunnudaginn 21. apríl kl. 14.00.  Flestir sem komnir eru á fullorðinsár þekkja vísurnar um óþekktarangann Gutta og prakkarastrik hans en Gutti er einmitt aðalpersónan í leiksýningunni ásamt félögum sínum úr hverfinu. Nánari upplýsingar á www.kopleik.is. Verkið er eftir Örn Alexandersson en hann er jafnframt leikstjóri. Auk Gutta eru aðrar persónur úr kveðskap Stefáns sem allir þekkja, svo sem Óli Skans og Vala kona hans, Ranka sem var rausnarkerling,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert