Author: lensherra

Yggdrasil frumsýnir Tjaldið

Fimmtudaginn 11. apríl frumsýnir Yggdrasil, leikfélag VMA, leikritið Tjaldið eftir Hallgrím Helgason í Rósenborg á Akureyri. Leikritið er hluti af Þjóðleik sem er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Leikstjórar eru Pétur Guðjónsson og Jóhanna G. Birnudóttir. Tjaldinu er ætlað að höfða fyrst og fremst til ungs fólks en hæfir þó fólki á öllum aldri.  Tjaldið fjallar um unglinga sem fara á útihátíð um verslunarmannahelgina. Þar er vinahópur...

Sjá meira

Frumsýning á Englum alheimins 20. apríl

Þann 20. apríl mun Þjóðleikhúsið frumsýna á Stóra sviðinu Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson í nýrri leikgerð Þorleifar Arnar Arnarssonar og Símons Birgissonar. Englar alheimsins er ein ástælasta skáldsaga síðari ára og hafa bæði kvikmyndin og skáldsagan notið fádæma vinsælda. Ljóst er að margir bíða leikgerðarinnar með eftirvæntingu en um leið og forsala hófst varð uppselt á flestar sýningarnar. Sýningarkvöldum hefur nú verið fjölgað og aukasýningum bætt við en eftirspurnin eftir miðum er mikil. Í Englum alheimsins er sögð saga listamannsins Páls sem verður ungur illa haldin af geðveiki og missir tökin á lífinu. Fáar sögur hafa hitt...

Sjá meira

Kvennafræðarinn frumsýnt 18. apríl

Hver er ekki forvitin um kvennlíkamann? Þann 18. apríl mun Þjóðleikhúsið frumsýna eldfjörugt og sprenghlægilegt verk,  Kvennafræðarann í leikstjórn Charlotte Böving í Kassanum. Höfundurinn, Kamilla Wargo Brekling, byggir leikritið á bókinni „Kvinde kend din krop“.  Bókin kom fyrst út í Dannmörku árið 1975 og vakti strax mikla athygli með hispurslausri umfjöllun um konur, líkama þeirra, frjósemi og kynlíf. Bókin þótti byltingarkennd og varð vopn í baráttunni við að efla sjálfsvitund og virðingu kvenna. Reglulega hefur bókin komið út í nýrri og uppfærðri útgáfu og byggir leikritið á öllum útgáfum hennar. Leikritið var fyrst sett á svið fyrir tveimur árum...

Sjá meira

Grease á Höfn

Leikfélag Hornafjarðar og Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu setja í sameiningu upp söngleikinn Grease í samstarfi við Tónskóla Hornafjarðar og frumsýna laugdagin 13. apríl. Flestir landsmenn þekkja söngleikinn Grease en hann er löngu orðinn heimsfrægur. Svo skemmtilega vill til að auk þess að vera settur upp á Höfn þá er nú unnið að uppsetningu verksins í Vestmannaeyjum. Vinsældir Grease hafa því greinilega lítið dalað frá því að kvikmyndin kom út árið 1978. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. Sýningar fara fram í Mánagarði en þar hafa miklar endurbætur farið fram og aðstaða fyrir leikara er nú til fyrirmyndar. Næstu sýningar verða:...

Sjá meira

Sjóræningjaprinsessan í Hafnarfirði

Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir laugardaginn 6. apríl barna- og fjölskylduleikritið Sjóræningjaprinsessuna eftir Ármann Guðmundsson, einn af meðlimum Ljótu hálfvitanna, en hann semur einnig tónlistina ásamt Guðmundi Svafarssyni. Söngtextar eru eftir Ármann og Sævar Sigurgeirsson. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og er leikritið sýnt í Gaflaraleikhúsinu við Víkingastræti. Verkið fjallar á ærslafengin hátt um ævintýri barnanna Soffíu og Matta sem alist hafa upp hjá gistihúsinu Sporðlausu hafmeyjunni á friðsælli eyju í Suðurhöfum allt frá því að Soffía kom þangað með dularfullum hætti sem ungabarn. Ólíkt Matta uppeldisbróður sínum þráir hún að lenda í ævintýrum og heldur því statt og stöðugt fram að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert