Author: lensherra

Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá leikársins

Leikfélag Kópavogs kynnir dagskrá vetrarins á almennum félagsfundi mánudaginn 2. sept. kl. 19.30 í Leikhúsinu. Dagskráin er afar fjölbreytt og hefst á námskeiðum fyrir 11-12 ára annarsvegar og 13-16 ára hinsvegar. Þá verður einnig haldið námskeið fyrir byrjendur sem hefst 9. september. Þá verða leiksýningar og leikdagskrár á boðstólum og verður nánar upplýst um það á félagsfundinum. Nýir félagar eru boðnir sérstaklega velkomnir á fundinn. Frekari upplýsingar má fá á vef félagsins...

Sjá meira

Opið hús í Borgarleikhúsinu laugardaginn 31. ágúst

Starfsfólk Borgarleikhússins lýkur upp dyrunum á laugardag kl. 13 og býður í vöfflukaffi með fjörlegri dagskrá. Það verður líf á öllum sviðum og um allt leikhús. Gestir á öllum aldri geta upplifað töfra leikhússins, gægst baksviðs, farið í skoðunarferðir og  bragðað á ljúffengum vöfflum sem leikhússtjórinn Magnús Geir, mun reiða fram af myndarskap ásamt öðru starfsfólki. Leikarar, leikstjórar, hönnuðir og tæknifólk  verða við störf á öllum sviðum hússins, ýmist við æfingar eða sýningar eða til þess að svara spurningum sem brenna á forvitnum leikhúsgestum. Hið árlega opna hús Borgarleikhússins er haldið laugardaginn 31. ágúst. Þá geta gestir og gangandi...

Sjá meira

Leikárið 2013-14 í Þjóðleikhúsinu

Í Þjóðleikhúsinu leggjum við okkur fram um að laða að leiklistinni og leikhúsinu fólk á ólíkum aldri með ólík áhugasvið og því er framboð og úrval sýninga fjölbreytt. Við bjóðum upp á hvorki fleiri né færri en tíu mismunandi barnasýningar í vetur, og opnum meðal annars nýtt svið sérstaklega fyrir brúðusýningar á Brúðuloftinu. Og það sem við erum einna stoltust af er að yfir helmingur verka á verkefnaskrá leikhússins er ný og eldri íslensk sviðsverk, en við leggjum mikla áherslu á að leggja rækt við innlenda leikritun. Til að mynda verða fyrstu frumsýningar á öllum sviðum, á Stóra sviðinu,...

Sjá meira

Fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum

Leikfélagið Sýnir sýnir fjórar aukasýningar á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal dagana tvær næstu helgar. Laugardaginn 31. ágúst og sunnudaginn 1. september hefjast sýningar kl. 20 en föstudaginn 6. og laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson. Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið...

Sjá meira

Leikárið framundan hjá Leikfélagi Akureyrar

Starfsemi er komin á komi á fullt að loknum sumarleyfum hjá Leikfélagi Akureyrar. Leikfélagið heldur upp á 40 ára afmæli sem atvinnuleikhús í ár og tekur verkefnavalið mið af því. Leikárið byrjar á tveimur gestasýningum. Blakkát eftir Björku Jakobsdóttur verður sýnt í Samkomuhúsinu í september, frumsýnt þann 6. september og Segðu mér satt eftir Hávar Sigurjónsson með Ragnheiði Steindórsdóttur, Árna Pétri Guðjónssyni og Sveini Ólafi Gunnarssyni sem verður sýnt í Rýminu 7. september. Æfingar á SEK eftir Hrafnhildi Hagalín hófust í síðustu viku og er óhætt að segja að hér sé á ferðinni magnað verk. Ingibjörg Huld Haraldsdóttir leikstýrir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert