Author: lensherra

GRAL frumsýnir Eiðinn og Eitthvað

Leikhópurinn GRAL frumsýnir leikverkið Eiðurinn og Eitthvað, fyrsta vekrið sem Gubergur Bergsson skrifar fyrir leiksvið, á leiklistarhátíðinni LÓKAL þann 28. ágúst 2013 í Tjarnarbíói. Aðlögun og leikstjórn er höndum Bergs Þórs Ingólfssonar en leikarar eru Sveinn Ólafur Gunnarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Erling Jóhannesson og Benedikt Karl Gröndal. Verkið verður síðan sýnt áfram út september. Skáldið stendur á sviðinu með óstraujaðar buxur og ómótaðar hugmyndir í kollinum um tvö leikverk. Hann kallar fram persónur sem hefja leik. Tveir menn sitja á sjúkrarúmi og velta fyrir sér tilgangi tilverunnar. Kona í hvítum sloppi kemur inn og hristir rassinn. Er þessi kona komin...

Sjá meira

Leikárið 2012–13 hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga

Nú liggja fyrir helstu tölur um starfsemi aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2012-2013 og eru þær heilt yfir ívið lægri á öllum póstum en undanfarin ár, þótt ekki muni neinum ósköpum. Á leikárinu voru 59 aðildarfélög aðilar að Bandalaginu en fjöldi félaga með starfsemi á árinu var 36 og í þeim félögum störfuðu 2.389 félagar. Settar voru upp 85 leiksýning sem sýndar voru 523 sinnum og tóku þátt í þeim 1.359 manns. Heildarfjöldi áhorfenda á sýningum aðildarfélaga Bandalagsins var 34.438 manns. 20 best sóttu sýningarnar voru þessar: 1. Borgarbörn – Jólaævintýrið, 2231 áhorfendur á 26 sýningum2. Freyvangsleikhúsið – Skilaboðaskjóðan,...

Sjá meira

Leikhópurinn Artik frumsýnir Blik í september

Leikhópurinn Artik frumsýnir leikritið Blink eftir Phil Porter, sem hlotið hefur nafnið Blik í þýðingu Súsönnu Svavarsdóttur, þann 8. september í Gamla bíói. Leikarar eru Jenný Lára Arnórsdóttir og Hafsteinn Þór Auðunsson en Leikstjóri er Unnar Geir Unnarsson. Blink var frumsýnt 2. ágúst á síðasta ári á Edinborgar leiklistarhátíðinni. Er því um að ræða frumsýningu á íslandi á nýju bresku verki. Artik hefur áður sett upp Hinn fullkomna jafningja eftir Felix Bergsson. Blik er saga Jonah og Sophie, tveggja einstakra einstaklinga. Blik er ástarsaga, hún er myrk, óvenjuleg og skondin en ástarsaga engu að síður. En hafið í huga...

Sjá meira

Leikklúbburinn Saga frumsýnir Leyndarmál

Leikklúbburinn Saga frumsýnir í kvöld, 6. ágúst, leikritið Leyndarmál eftir Jónínu Leósdóttur. Leikstjórn er í höndum leikhópsins en hann skipa ungmenni á aldrinum á aldrinum 15 til 25 ára. Leikritið verður sýnt í Rýminu á Akureyri miðvikudags- og fimmtudagskvöld klukkan 20.30. Á föstudagskvöld hefst sýning hins vegar klukkan 19.30. Leikklúbburinn Saga var stofnaður árið 1976 en var endurreistur í fyrra eftir að hafa legið nokkur ár í dvala. Leyndarmál segir af vinahópi í framhaldsskóla. Þau eru hvert með sínu laginu en fljótlega kemur í ljós að aðalpersónana, Sólveig, á í einhverju sálarstríði. Hún er vansæl og líður illa heima...

Sjá meira

Menningarhátíðin Act Alone 2013

Dagana 8. – 11. ágúst fer fram allsherjar leik, og tónlistarveisla fyrir vestan, nánar tiltekið á Suðureyri við Súgandafjörð. Hátíðin ber nafnið ACT ALONE og eitt af því sem gerir hana sérstaka er að frítt er inn á alla viðburði helgarinnar og því upplagt að skella sér vestur í menningarveislu með börn og buru. Dagskráin er sérlega vönduð og fjölbreytt að þessu sinni enda um tíu ára afmælishátíð að ræða. Allt þorpið verður undirlagt í skemmtun og því hægt að fara á milli viðburða allann daginn og langt fram á sumarkvöldið fagra. Á Suðureyri er líka frábær sundlaug og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert