Author: lensherra

Haustfundur Leikfélags Selfoss

Leikfélag Selfoss býður þér á opinn kynningarfund miðvikudaginn 11. september í Litla leikhúsinu við Sigtún kl. 20.30. Fundurinn er tilvalið skjól fyrir votum vindum haustsins í heimilislegum og hlýjum faðmi leikhússins þar sem dagskrá vetrarins verður kynnt. Fyrsta verkefnið verður kynnt sérstaklega af leikstjóranum sjálfum. Við hvetjum nýtt fólk og þá sem vilja fræðast meira um leikfélagið endilega til að mæta. Allir eru velkomnir og heitt kaffi á könnunni, hlökkum til að sjá þig. Leikfélag...

Sjá meira

Soðið svið sýnir Hættuför í Huliðsdal

Leikhópurinn Soðið svið frumsýndi sl. helgi í samvinnu við Þjóðleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Hættuför í Huliðsdal, í Kúlunni. Höfundur verksins er Salka Guðmundsdóttir og leikstjóri Harpa Arnardóttir. Leikhópurinn Soðið svið vakti mikla athygli fyrir sýninguna Súldarsker, en það verk var einnig eftir Sölku Guðmundsdóttur og listrænir aðstandendur og leikarar voru flestir þeir sömu og nú. Eyja er hugmyndarík en einmana stelpa sem er nýflutt í gamalt, hrörlegt hús úti í sveit. Í herberginu hennar opnast hlið inn í magnaðan töfraheim og afa Eyju er rænt af illskeyttri álfkonu. Í Huliðsdal hittir Eyja fyrir alls kyns furðuverur og þarf að finna hjá sér...

Sjá meira

Mary Poppins aftur á svið og geisladiskur kominn út

Einn vinsælasti söngleikur allra tíma, Mary Poppins, fer aftur á svið í Borgarleikhússins á morgun föstudag 6. september Sýningin er sú viðamesta og flóknasta sem Borgarleikhúsið hefur nokkru sinni ráðist í – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (leikarar, kór, dansarar Íslenska dansflokksins, hljómveit og börn) og mikill fjöldi á bak við tjöldin. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir verkinu og Gísli Rúnar Jónsson annast þýðingu á lausu og bundnu máli. Tónlistin úr söngleiknum er nú komin út á geisladisk og er tónlistarstjóri...

Sjá meira

Lokasýning á Sjö samúræjum

Allra síðasta sýning Leikfélagsins Sýnir á Sjö samúræjum, í Elliðaárdal, verður laugardaginn 7. september kl. 18. Hér er um að ræða útileiksýningu, byggða á klassískri kvikmynd Akira Kurosawa, þar sem áhorfendur eru leiddir um Elliðaárdalinn til að fylgja sögunni af hetjunum sjö sem taka að sér að vernda fátæka bændur fyrir ofríki grimmra ræningja. Höfundur leikgerðar og leikstjóri er Guðmundur Erlingsson. Fátækir bændur í ónefndu þorpi hafa lengi þurft að búa við ofríki ræningja sem ræna uppskeru þeirra og konum og brenna þorpið ef þeir eru óánægðir með ránsfenginn. Að lokum er bændunum nóg boðið, þeir ákveða að leita...

Sjá meira

Ítrekun – NEATA hátíð 2014 og leiksmiðja fyrir ungmenni

Dagana 1. til 6. júlí  2014 verður áttunda NEATA-leiklistarhátíðin haldin, að þessu sinni í Porvoo í Finnlandi. Hátíðin verður með hefðbundnu sniði; leiksýningar frá öllum NEATA-löndunum og tveimur öðrum evrópulöndum að auki, gagnrýni, leiksmiðjur, námskeið og samvera í hátíðarklúbbi. Fyrir og samhliða hátíðinni í Porvoo verður hálfs mánaðar leiksmiðja á vegum NEATA-Youth. Aðildarlönd NEATA eru Danmörk, Eistland, Finnland, Færeyjar, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð. Hvert land má senda eina leiksýningu sem er að hámarki 90 mín. löng. Leikið verður á leiksviðum í hefðbundnum leikhúsum. Hátíðin greiðir uppihald og þátttöku í hátíðinni fyrir 10 manna hópa frá hverju landi,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert