Author: lensherra

Elska – sýningar í Reykjavík

Einleikurinn Elska, eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur, var sýndur við góðar viðtökur í sveitarfélögum Þingeyjarsýslna fyrir jólin 2013. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að sýna tvær sýningar á Cafe Rosenberg í Reykjavík núna í janúar. Einleikurinn er unnin upp úr ástarsögum Þingeyinga. Í verkinu eru sannar ástarsögur okkar tíma dregnar fram í dagsljósið. Sýningar  verða 20. og 27. janúar kl. 21.00. Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og þau voru um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Verkið byggir á viðtölum við pör...

Sjá meira

Fjórar sýningar á fjölum Tjarnarbíós í janúar

Fjórar sýningar eru í boði á fjölum Tjarnarbíós í janúar. Tvær aukasýningar verða á uppsetningu Lab Loka á Stóru börnunum, Með horn á höfði í flutningi GRAL snýr aftur, leikhópurinn Aldrei óstelandi flytur sig í Tjarnarbíó með Lúkas eftir Guðmund Steinsson og loks mun Eldklerkurinn eftir Pétur Eggerz í flutingi Möguleikhússins verða sýndur. Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur fékk mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda þegar það var sýnt í nóvember og byrjun desember. Símon Birgisson í Djöflaeyjunni valdi hana sýningu haustsins og að mati Jóns Viðars Jónssonar, gagnrýnanda Fréttablaðsins, var Rúnar Guðbrandsson leikstjóri ársins. Þá valdi Sigurður Valgeirsson hjá...

Sjá meira

Mary Poppins og Jeppi á Fjalli kveðja

Sýningum lýkur brátt á tveimur vinsælustu verkum síðasta árs Mary Poppins og Jeppa á Fjalli. Mary Poppins hefur sett nýtt aðsóknarmet í 117 ára sögu Leikfélags Reykjavíkur – yfir 64.000 gestir. Sýningartímibil Mary Poppins hefur þegar verið framlengt en samningar gerðu ráð fyrir að hætt yrði sýningum í lok árs 2013. Söngleikurinn er flóknasta og viðamesta uppsetning Borgarleikhússins til þessa – mannmörg og krefjandi dans og söngatriði, hraðar og stórar sviðskiptingar, háskaleg flugatriði og ótal tæknibrellur. Alls eru 50 manns á sviði í Mary Poppins (leikarar, kór, dansarar Íslenska dansflokksins, hljómveit og börn) og mikill fjöldi á bak við...

Sjá meira

Hamlet frumsýndur í Borgarleikhúsinu 11. janúar

Laugardaginn 11. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið Hamlet efir William Shakespeare á Stóra sviðinu. Þessi margrómaði harmleikur um Hamlet Danaprins er frægasta leikverk Shakespeares og mest leikna leikverk allra tíma. Teymi listrænna stjórnenda Hamlets er leikhúsgestum Borgarleikhússins að góðu kunnugt því þar fer mikið til sami flokkur og færði okkur Mýs og menn með leikstjórann Jón Pál Eyjólfsson í broddi fylkingar. Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmynd, María Ólafsdóttir búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsingu. Úlfur Eldjárn semur tónlistina fyrir vekið. Ólafur Darri Ólafsson er í hlutverki Hamlets og Ófelíu leikur Hildur Berglind Arndal. Það eru viðsjárverðir tímar. Þjóðir vígbúast. Herlið...

Sjá meira

Sjötugasta leikár Leikfélags Dalvíkur

Leikárið 2013-2014 er 70. leikár Leikfélags Dalvíkur og verður því miklu tjaldað til. Ákveðið hefur verið að setja upp sýninguna Þið munið hann Jörund, sem var einmitt sett upp á 40 ára afmæli leikfélagsins og fékk frábærar viðtökur. Stefnt er að því að frumsýna verkið í seinnihluta mars 2014. Aðalsteinn Bergdal hefur verið ráðinn leikstjóri og gaman að segja frá því að hann lék sjálfur í þessu verki í uppfærslu Leikfélags Akureyrar hér um árið. Þannig að hér eru spennandi tímar framundan og verður gaman að fara af stað aftur eftir miklar endurbætur á leikhúsinu okkar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert