Author: lensherra

Leikfélag Hörgdæla kynnir: Betan 2013!

Betan 2013 er frábært skemmtikvöld sem enginn má missa af. Sýndir verða nokkrir einþáttungar eftir okkar frábæru Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og á eftir verður lifandi tónlist og fjör. Skemmtunin verður föstudaginn 27. desember kl. 21.00 á Melum. Miðaverð er 1.500 kr og öll innkoma rennur til Bandalags Íslenskra Leikfélaga. Fjölmennum á Mela og höfum gaman saman, (kaffiveitingar) malpokar...

Sjá meira

Ársrit Bandalagsins 2012–13 komið út

Nú er ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið komið út 2011–2012. Eins og í fyrra verður því aðeins dreift hér á Leiklistarvefnum í pdf-formati. Í ársritinu eru allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalagsins og aðildarfélaga þess og umtalsvert magn af myndum víðsvegar af úr starfinu. Kjörið til að láta liggja frammi í húsnæði félagsins svo að leikfélagsfélagar geti kynnt sér hvað er að gerast í áhugaleikhúsinu.Hér er má sækja ársritið. Leikfélög og einstaklingar geta pantað útprent, Kostnaður er 2.000 kr. fyrir útprentið og ef þið viljið fá þetta gormað inn þá kostar það 1.500 kr. til viðbótar. Hægt er að...

Sjá meira

Gleðileg jól!

Bandalag íslenskra leikfélaga óskar leikhúsfólki og öðrum viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og þakkar fyrir samskiptin á árinu sem er að líða. Verslunin verður lokuð frá og með 16. desember og við opnum aftur á nýju ári þann 2. janúar. Hafið það gott yfir...

Sjá meira

Leikhús nútímans komin út

Út er komin hjá Háskólaútgáfunni bókin Leikhús nútímans eftir Trausta Ólafsson Í Leikhúsi nútímans rekur Trausti hugmyndir og hugsjónir frumkvöðla í leikhúsi Vesturlanda allt frá miðri nítjándu öld og fram yfir aldamótin tvö þúsund. List og fagurfræði leikstjóra, leikskálda og hönnuða eru gerð skil og því lýst hvernig þróun leikhússins helst í hendur við sögu menningar og samfélags. Hér gefst lesendum þess vegna færi á því að kynna sér á heildstæðan hátt þær hugmyndir og hugsjónir sem mótað hafa leikhús samtímans. Leikhús nútímans er fyrsta rit sinnar tegundar sem skrifað er á íslensku. Í bókinni eru nær tvö hundruð...

Sjá meira

Þingkonurnar á stóra sviði Þjóðleikhússins

Jólafrumsýning Þjóðleikhússins er Þingkonurnar eftir Aristófanes í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Þingkonurnar er eitt frægasta verk forngríska gamanleikjaskáldsins Aristófanesar og var frum­sýnt um 392 f.Kr. á miklum kreppu­tímum í stjórnmálum Aþenuborgar. Þessi ærslafulli gamanleikur Aristófanesar minnir okkur á að leikhúsinu er ekki einungis ætlað að vera musteri tungunnar heldur einnig vígvöllur hugmyndanna. Frumsýning verður þann 26. desember. Hin málsnjalla Praxagóra fer fyrir flokki kvenna sem er búinn að fá nóg af óstjórn karlmanna í Aþenu. Konurnar dulbúa sig sem karlmenn, fjölmenna á þing Aþeninga og fá það samþykkt að konum skuli falin öll völd. Og hverju vilja þær svo breyta?...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert