Author: lensherra

Spjall með leikurum og leikstjóra Lúkasar

Laugardaginn, 18. janúar, eftir sýningu á leikritinu Lúkas, munu leikendur og leikstjóri setjast niður með áhorfendum og ræða leikritið. Sýningin hefst kl. 20.00 en verður lokið um 21.30. Þá munu Stefán Hallur Stefánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem fara með hlutverk í leikritinu, og Marta Nordal, leikstjóri, setjast niður á kaffihúsi Tjarnarbíós og ræða við áhorfendur og aðra gesti um sýninguna. Þau munu svara spurningum, sem áhorfendur kunna að hafa, og segja frá sinni upplifun af verkinu. Leikritið Lúkas eftir Guðmund Steinsson var frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þann 28. desember síðastliðinn og hlaut mikið lof gagnrýnenda...

Sjá meira

LA frumsýnir Gullna hliðið

Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar 17. janúar n.k. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu en það er nú sett upp í fjórða sinn hjá LA. Sýningin er hátíðarsýning félagsins á 40 ára atvinnuafmæli þess. Verkið fjallar um uppgjör kerlingar við líf sitt og Jón mann sinn. Ferðalag hennar til hins gullna hliðs með sálartetur bónda síns í skjóðu er löngu orðið þekkt í íslenskum leikbókmenntum og leitast uppfærslan við að vera trú þessari reisu og varpa ljósi á hvaðan við komum. Hljómsveitin Eva með þær Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur innanborðs semja...

Sjá meira

Óraunveruleikir frumsýnt í Þjóðleikhúsinu

Nýtt íslenskt sviðsverk samið og flutt af Urði Hákonardóttur, Valgerði Rúnarsdóttur og Þyri Huld Árnadóttur, verður frumsýnt í Kassanum fimmtudaginn 16. janúar klukkan 20. Aðrar sýningar verða 17. 25. og 26. janúar. Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og unnið í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Við lögðum upp í rannsóknarleiðangur um raunveruleikann. Snerumst í hringiðu óendanlegs sívalnings. Hvernig finnur maður mörk ímyndunaraflsins? Hvernig sannar maður hið ósannreynanlega? Hvernig skilgreinir maður hið trúlega frá hinu ótrúlega? Hver er minn raunveruleiki? Hver er þinn?  
Í verkinu er skynfærunum boðið í ferðalag, mögulega á vit hins...

Sjá meira

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn sýnir Sagnakonuna áfram

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn frumsýndi Sagnakonan, móðir Snorra eftir Óskar Guðmundsson í leikgerð leikstjórans Jakobs S. Jónssonari og leikhópsins. Sýnt er í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi 22. nóv. sl. og voru sýndar 6 sýningar fyrir jól við góðar undirtektir. Nú hefur leikfélagið tekið upp þráðinn að nýju og ætla að sýna nokkrar sýningar. Þær verða:Þriðjudaginn 14. jan. kl. 20:00Fimmtudaginn 16. jan. kl. 20:00Föstudaginn 17. jan. kl. 20:00Sunnudaginn 19. jan. kl. 20:00 Lýsingu vann Ingþór Bergmann Þórhallsson, en svið og búninga gerði leikstjóri og leikhópurinn, en hann skipa Erla Gunnarsdóttir, Guðbjörg Árnadóttir, Lilja Rut Bjarnadóttir og Þórdís Ingibjartsdóttir. Miðaverð er 1000...

Sjá meira

Sjö samúræjar til Finnlands

Leikgerð Leikfélagins Sýna á japönsku stórmyndinni Sjö samúræjar hefur verið valin til að fara sem fulltrúi Íslands á NEATA-leiklistarhátíðina sem haldin verður í Porvoo í Finnlandi dagana 1.–6. júlí nk. Höfundur leikgerðarinnar er Guðmundur Erlingsson og er hann jafnframt leikstjóri verksins. Hátt í 30 leikarar taka þátt í sýningunni sem er útileiksýning og var sýnd í Elliðaárdal sl. sumar. Þetta er 8. NEATA-leiklistarhátíðin sem haldin er, síðast var hún haldin í Sønderborg í Danmörku 2012 og þar áður á Akureyri...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert