Leikfélag Kópavogs frumsýnir stórvirkið Þrjár systur
Liðsmenn Leikfélags Kópavogs hafa keppst við undanfarnar vikur og nú hillir undir að árangur erfiðisins líti dagsins ljós því næstkomandi föstudag, 31. janúar, frumsýnir félagið Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í Leikhúsinu við Funalind. Er þetta viðamesta sýning félagsins í húsinu. Um 15 leikarar taka þátt í sýningunni en auk þeirra leggja fjöldamargir hönd á plóg. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson sem vakið hefur mikla athygli á síðustu árum fyrir vandaðar og áleitnar sýningar, síðast Stóru börnin og þar áður Hvörf um Guðmundar og Geirfinnsmál. Þrjár systur telst löngu orðið klassískt verk, það er skrifað snemma á síðustu öld en...
Sjá meira


