Author: lensherra

Fullkomið brúðkaup á Dalvík

Undanfarnar vikur hefur mikið gengið á í Ungó á Dalvík þar sem Leikfélag Dalvíkur hefur æft af krafti leikritið Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon. Verkið er farsi af bestu gerð og gerist í aðdraganda hins „fullkomna“ brúðkaups sem reynist kannski ekki svo fullkomið þegar öllu er á botnin hvolft. Aðalsteinn Bergdal leikstýrir hópnum af stakri prýði og verður verkið frumsýnt föstudaginn 4. apríl klukkan 20.00. Miðasala og frekari upplýsingar í síma 8689706 milli klukkan 16.00 og...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Supracolor eru kremlitir frá Kryolan. Þeir hafa reynst vel í áratugi og eru alltaf í þróun. Þeir eru framleiddir úr viðurkenndum olíum og ofnæmisprófuðum litarefnum. Við fengum nýlega 12 og 6 lita box á mjög góðu verði. Margar litasamsetningar eru í boði og verðið er 6.800 fyrir stærri boxin og 2.500 fyrir þau minni. Þetta eru flottir litir sem gott er að vinna með, þeir blandast og þekja mjög vel. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti...

Sjá meira

Í beinni á Breiðumýri

Laugardaginn 22. mars sl. frumsýndi Leikdeild Umf. Eflingar í samkomuhúsinu á Breiðumýri glænýtt íslenskt verk, Í beinni, eftir Hörð Þór Benónýsson með tónlist eftir Jaan Alavere í leikstjórn Jennýjar Láru Arnórsdóttur og tónlistarstjórn Jaan Alavere og Péturs Ingólfssonar.Má segja að verkið sé gamandrama þar sem m.a. er fjallað á grátbroslegan hátt um fréttamat nútímans, auk þess sem skyggnst er nánar í fjölskyldulíf nokkurra persóna. Verkið er samtímaverk sem gerist á einum sólarhring um verslunarmannahelgina á hinum ýmsu stöðum á landinu, auk þess sem beinar útsendingar frá útvarpsstöðinni FM 101 eru í gangi. Í sýningunni taka þátt 25 leikarar, fjögurra...

Sjá meira

Revíukvöld á Melum

Föstudagskvöldið 28. mars kl. 20.30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Reyttar fjaðrir frá árinu 1985 á Melum.Hvað gerðist í sveitinni á fyrri hluta níunda áratugar síðustu aldar? Manstu eftir kvenfélagsfundinum?Gómsætt vöfflukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn...

Sjá meira

Ávörp á alþjóðaleiklistardaginn 27. mars 2014

Það var rúmenska leikskáldið Eugéne Ionesco sem sagði að leiksviðið væri staður þar sem manneskjan mætti sjálfri sér. Það sem er í húfi við þau kynni, mín orð ekki hans, er reynslan sem má draga af þeirri viðkynningu. Við hittum okkur sjálf á sviðinu. Stundum í líki fljúgandi barnfóstru eða sjómanns sem syndir í átt að eyju í Norður-Atlantshafinu. Það er frásögnin af manneskjunni sem dregur okkur í leikhúsið. Baráttan sem hún stendur andspænis, afdrif hennar og örlög. Síðustu vikur hefur heimsbyggðin beðið frétta af örlögum rúmlega 240 sálna sem voru um borð í flugi MH370 sem hvarf þann...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert