Tjarnarbíó kynnir Útundan
Tjarnarbíó frumsýnir leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn í uppsetningu Háaloftsins fimmtudaginn 10. apríl nk. Áhrifamikið og nærgöngult leikrit um sársaukann, örvæntinguna og vonina þegar það eðlilegasta og náttúrlegasta af öllu í lífinu er orðið heitasta óskin, fjarlægur draumur, takmark sem kannski mun aldrei nást. Í leikritinu Útundan er tekið á aðstæðum sem hrjá eitt af hverjum sex pörum hér á landi, sem og í hinum vestræna heimi, í dag. Skyggnst er inn í líf þriggja para á fertugsaldri sem þrá að eignast barn en tekst það ekki. Þau leita ýmissa leiða til að láta drauminn rætast og standa...
Sjá meira


