Author: lensherra

Leikfélag Hofsóss frumsýnir Blúndur og blásýru

Föstudaginn 4. apríl kl. 20 frumsýnir Leikfélag Hofsóss gamanleikinn Blúndur og blásýra eftir Joseph Kesselring í þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í félagsheimilinu Höfðaborg. Alls taka 11 leikendur þátt í sýningunni og leikstjóri er Ármann Guðmundsson. Leikritið fjallar um leiklistargagnrýnanda sem kemst að því sér til mikillar skelfingar tvær eldri frænkur hans hafa stundað það af góðmennsku sinni að eitra fyrir einmanna eldri mönnum og jarða þá síðan í kjallaranum hjá sér. Til að flækja málin er hann nýbúinn að biðja unnustu sinnar þegar hann kemst að þessu auk þess sem sérdeilis illa innrættur bróðir hans stingur upp...

Sjá meira

Uppsprettan; Opnar leikæfingar í Tjarnarbíói

Uppsprettan verður haldin í annað sinn í Tjarnarbíói mánudaginn 7. apríl.Formið er þannig að leikarar og leikstjórar fá ný stuttverk til að vinna með sólarhring fyrir sýningu. Þau hafa því einungis þennan eina sólarhring til að kynna sér handritið og átta sig á möguleikum þess. Þremur tímum fyrir sýningu hittast listamennirnir í fyrsta sinn og byrja æfingar. Æfingarnar eru opnar almenningi. Frá kl. 18.00-21.00 geta gestir komið í Tjarnarbíó og kíkt inn á þær æfingar sem eru í húsinu, velt fyrir sér vinnuaðferðum og ákvarðanatökum í sambandi við verkið, jafnvel lesið verkin sjálfir og velt þeim fyrir sér. Inn...

Sjá meira

Málþing um einhverfu í Borgarleikhúsinu 5. apríl kl 17

Opið málþing um einhverfuróf á Stóra sviðinuHaldið í tilefni af Alþjóðlegum degi einhverfu (2. apríl) og í tengslum við sýninguna Furðulegt háttalag hunds um nóttFjórir fyrirlestrar – Dr. Evald Sæmundsen, Jarþrúður Þórhallsdóttir, Laufey I. Gunnarsdóttir og Ingibjörg Elsa Björnsdóttir og pallborðsumræður að þeim loknumUmræður um kvöldið í kjölfar sýningará Furðulegu háttalagi hunds um nótt með aðstandendum verksins Næstkomandi laugardag kl 17 standa Einhverfusamtökin og Borgarleikhúsið fyrir málþingi um einhverfu á Stóra sviðinu. Málþingið er haldið í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu (sem er 2. apríl) og í tengslum við sýninguna Furðulegt háttalag hunds um nótt sem fjallar um einstakan...

Sjá meira

Heimsfrægur prins í Kúlunni

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 5. apríl í Kúlunni leikritið Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry í leikgerð og leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Litli prinsinn er eitt ástsælasta bókmenntaverk síðustu aldar, en bókin kom fyrst úr árið 1943 í Frakklandi. Síðan þá hefur Litli prinsinn farið sigurför um heiminn en verkið hefur verið þýtt á yfir 250 tungumál.  Litli prinsinn er ein af mest seldu skáldsögum í heimi en árlega seljast allt að tvær milljónir eintaka af verkinu um víða veröld. Flugmaður nauðlendir í Sahara eypimörkinni og rekst þar á lítinn dreng, prins frá öðrum hnetti, sem segir honum frá heimkynnum...

Sjá meira

Hugleikur frumsýnir Stund milli stríða

Stund milli stríða er nýr íslenskur söngleikur sem leikfélagið Hugleikur frumsýnir i Tjarnarbíói 5. apríl. Alls eru áætlaðar sjö sýningar. Sögusviðið er Reykjavík millistríðsáranna, sem reynist eiga sér merkilega margar og sláandi hliðstæður í nútímanum. Haustið 1932 streyma stúlkur utan af landi í bæinn til að ganga í húsmæðraskóla. Þær eru uppfullar af spenningi og bjartsýni æskunnar en vita ekki að skólinn á í rekstrarvandræðum þar sem ástandið í þjóðfélaginu eftir heimskreppu skapar aðstæður sem þrengja að. Skömmuntarseðlar, áfengisbann, berklaveiki, þjóðernisrembingur og almenn spilling yfirvalda markar líf þeirra sem reyna að fóta sig í íslensku samfélagi fjórða áratugarins. Höfundur verksins...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert