Author: lensherra

Sitji guðs englar slær í gegn á Húsavík

Sýningar standa nú  yfir hjá Leikfélagi Húsavíkur á leikritinu Sitji guðs englar. Þetta er leikgerð Illuga Jökulssonar upp úr þrem bókum Guðrúnar Helgadóttur; Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikstjórar eru Oddur Bjarni Þorkelsson og Margrét Sverrisdóttir. Uppselt hefur verið á allar sýningarnar 17 sem sýndar hafa verið. Sýnt verður fram til 1. maí en þá verður englum pakkað niður til hvíldar.     Sitji guðs englar fjallar um fátæka og barnmarga fjölskyldu í íslensku sjávarþorpi á hernámsárunum og við sjáum lífið á þessum árum gegnum augu barnanna. Hinar og þessar uppákomur verða í lífi...

Sjá meira

Revíukvöld á Melum

Föstudagskvöldið 25. apríl kl. 20:30 ætlar Leikfélag Hörgdæla, í samvinnu við Sögufélag Hörgársveitar, að sýna upptöku af revíunni Klúður & klaufaskapur frá árinu 1987 á Melum. Hvað gerðist í sveitinni á níunda áratug síðustu aldar? Manstu eftir J-listanum eða fiskeldinu? Gómsætt kleinukaffi innifalið í miðaverði (500 kr.) og verzlunarstjórinn mætir á svæðið með sinn hefðbundna og létta varning. Vinsamlegast látið berast til vina og ættingja utan...

Sjá meira

Gull í tönn á Egilsstöðum

Leikfélag Fljótsdalshéraðs frumsýnir nýtt íslenskt leikrit í Valaskjálf laugardaginn 26. apríl.  Um er er að ræða nýjasta verk Ásgeirs Hvítaskálds. Hann segir verkið hafa verið að gerjast til fjölda ára en hann fór þó ekki að skrifa það fyrr en hann flutti á Fljótsdalshérað. Gull í tönn segir frá gömlum hrossabónda sem hefur tilkynnt að hann ætli að deyja og það sé í rauninni góður dagur til þess í dag. Við þessar fréttir gerir fólk sér upp erindi við kallinn, því hann er með þeim ósköpum gerður að vera með gulltennur í munninum og allir vilja fá sinn hlut...

Sjá meira

Lokað um páskana og 25. apríl

Leikhúsbúðin og skifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga verða lokaðar yfir páskahátíðina og eins föstudaginn 25. apríl. Það verður því aðeins opið þriðjudag og miðvikudag (22. og 23.) í næstu viku. Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska með von um að páskahretið sé þegar gengið...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Litað hárspray frá Kryolan. Þekjandi litir fyrir hár, skegg og hárkollur. Litirnir koma í 150 ml. úðabrúsum, fást í 24 litum og verðið er 1.800.- Einnig eigum við Glimmer spray í silfri og gulli í 150 ml. brúsum á kr. 1.375.- og blátt, rautt og grænt í 75 ml. brúsum á kr. 890.-. Glimmerinu má úða á hár, húð og föt. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is   Úðið litunum í hár úr...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert