Author: lensherra

Útlagar yfirtaka Gamla bíó

Útlagar hafa löngum verið á Íslandi og eru jafnvel enn. Þekktustu útlagarnir eru án efa Gísli Súrsson og Fjalla-Eyvindur. Kómedíuleikhúsið hefur samið leikrit um báða þessa kappa sem hafa notið mikilla vinsælda. Nú verða báðir leikirnir sýndir saman og því boðið uppá sannkallaða útlaga leikhústvennu. Sýnt verður í hinu stórglæsilega Gamla bíói enda dugar ekkert minna fyrir svona mikla kappa og þá Gísla Súra og Fjalla-Eyvind. Sýningar hefjast í lok maí og standa fram í miðjan júní. Fyrsta sýning verður á Uppstigningardag fimmtudaginn 29. maí kl.20 í Gamla bíó. Kveldið hefst með sýningu á Gísla Súrssyni. Leikurinn sá var...

Sjá meira

Answering Answering – Machine” í Rýminu

Leikhópurinn Talking Timber sýnir verkið „Answering Answering – Machine” í Rýminu laugardaginn 10. maí kl. 17:00. Hópurinn samanstendur af  Josephine Kylén Collins (SÞ), Mikkel Rasmussen Hofplass (NO), Piet Gitz-Johansen (DK) og Hanna Reidmar (SÞ). Tónlistarmennirnir  Jonny Collins Wartel og Georgia Wartel Collins sýna með þeim í þessu verki. Sýningin er flutt á ensku. Talking Timber dvelur í vinnustofu hjá Leikfélagi Akureyrar næstu fjórar vikurnar, sýning þeirra á sínu fyrsta verki “Answering Answering – Machine” er upphafið af dvölinni en í Rýminu munu þau einnig vinna að nýju verki sem frumsýnt verður í Black Box leikhúsinu í Osló vorið 2015....

Sjá meira

Stund milli stríða valin Athyglisverðasta áhugaleiksýningin

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fyrsta sinn. Að þessu sinni sóttu alls sautján leikfélög um að koma til greina við valið með nítján sýningar. Að vanda var úrval sýninganna afar fjölbreytt, leikfélögin sýndu ný frumsamin verk og eldri íslensk verk, nýleg og sígild erlend leikrit, spunasýningar, söngleiki, gamanleikrit og dramatísk verk, og jafnt leikrit fyrir börn sem fullorðna. Allar sýningar voru skoðaðar af upptökum. Í dómnefnd í ár sátu Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins og leikararnir Ragnheiður Steindórsdóttir og Snorri Engilbertsson. Eftirtalin leikfélög sóttu um með þessar sýningar:...

Sjá meira

Hamlet litli fyrir heyrnarlausa og blinda

Laugardaginn 10 maí kl 13 verður í fyrsta sinn á Íslandi hægt að sjá og heyra leiksýningu með bæði sjónlýsingu og táknmálstúlkun. Hægt verður að fá heyrnartól fyrir sjónlýsingarnar en einnig verða þrír táknmálstúlkar sem skuggatúlka hverja og eina persónu verksins. Sýningin er í samstarfi við List án landamæra. Nýlega frumsýndi Borgarleikhúsið verkið Hamlet litla á litla sviðinu þar sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði þeim Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni & tónlistarkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Gagnrýnendur eru himinlifandi með sýninguna. Sagan – Þegar Hamlet litli missir föður sinn er hann harmi sleginn og fer að haga sér stórfurðulega. Ekki...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

UV-Dayglow Compact Color frá Kryolan eru kremkendir vatnslitir. Litirnir eru skærir og sterkir og hægt að ná fram flottum áhrifum í venjulegri lýsingu en þegar notað er svokallað black light hverfur allt nema það sem málað er með þessum ótrúlegu litum. Litirnir fást í 8 lita palettu, verðið er kr. 10.500. Einnig er hægt að kaupa staka liti í 15 ml. dósum á kr. 1.750. Fást í rauðu, orange, grænu, gulu og bláu. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Litirnir eru bornir á með rökum svampi eða pensli og nást auðveldlega af með vatni og sápu. Lýsing framleiðanda á vörunni: Aquacolor UV-Dayglow is a fat-free water color. With a pigment content of ca. 50%. Aquacolor UV-Dayglow is specially color intensive and glows already under normal light conditions. It is universally applicable, for example, clothing, shoes, for baldness effects and masks to achieve special lighting effects under black light. Application is effortless, with an only slightly moistened make-up sponge or brush. After drying, it can be gently buffed with a soft towel. Setting Spray is recommended if the make-up will be subjected  to extreme conditions. Aquacolor is extensively smudge-proof and can be easily removed with soap and water. These used special fluorescent pigments are...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert