Author: lensherra

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar 2014

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar, ís­lensku sviðslita­verðlaun­anna 2014, voru kunn­gjörðar í dag og hlaut Eld­raun­in Eld­raun­in eft­ir Arth­ur Miller í leik­stjórn Stef­ans Metz, í sviðssetn­ingu Þjóðleik­húss­ins, flest­ar til­nefn­ing­ar eða ell­efu tals­ins. Verðlaun­in verða veitt í 12. sinn við hátíðlega at­höfn á Stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins þann 16. júní nk. og sýnd í beinni út­send­ingu á RÚV. Næst­flest­ar til­nefn­ing­ar, eða 10, hlaut óper­an Ragn­heiður eft­ir Gunn­ar Þórðar­son og Friðrik Erl­ings­son í leik­stjórn Stef­áns Bald­urs­son­ar og í sviðsetn­ingu Íslensku óper­unn­ar. Sýn­ing­arn­ar Furðulegt hátta­lag hunds um nótt eft­ir Simon Stephens í leik­stjórn Hilm­ars Jóns­son­ar, í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins, og Gullna hliðið eft­ir Davíð Stef­áns­son í leik­stjórn Eg­ils...

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn í stofu 14, Grunnskólanum í Þorlákshöfn þriðjudaginn 10. júní kl. 20:00. Auk aðalfundarstarfa verða verkefni leikársins rædd og tekið fagnandi á móti nýjum félögum. Þeir sem verða 18 ára á árinu geta gengið í félagið og að sjálfsögðu allir aðrir sem eldri eru og áhuga hafa á leiklist. Dagskrá fundar:1.      Kosning fundarstjóra og fundarritara2.      Skýrsla stjórnar3.      Skýrsla gjaldkera og afgreiðsla reikninga4.      Inntaka nýrra félaga.5.      Kosning stjórnar6.      Lagabreytingar7.      Árgjald8.      Næsta leikár9.      Önnur mál10.    Fundarslit Leikfélag Ölfuss var stofnað haustið 2005 og hefur síðan þá sett upp 9 stórar sýningar auk þess sem félagið hefur tekið...

Sjá meira

Hugleikur sýnir í Þjóðleikhúsinu

Kreppusöngleikur leikfélagsins Hugleiks, Stund milli stríða, var á vordögum valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins af dómnefnd Þjóðleikhússins og verður sýndur á stóra sviði leikhússins laugardagskvöldið 7. júní nk. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem Þjóðleikhúsið velur sýningu úr áhugaleikhúsinu og býður henni til sín. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Sögusviðið og umfjöllunarefnið er áhugavert, við hverfum aftur til kreppunnar milli stríða, með það í huga hvernig sá tími kallast á við okkar tíma. En hér eru húmorinn og ástin aldrei langt undan, né heldur tónlistin, og leikritið er bráðskemmtilegt. Fjöldi leikara og tónlistarmanna stendur að sýningunni, og flutningurinn...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Púður og kinnalitaburstar frá Grimas Burstarnir eru úr mjúku, eftirgefanlegu hrosshári og sérstaklega fínir til að bursta á púður, kinnalit og skyggingar. Burstarnir koma í 4 stærðum; nr. 4 kostar kr. 1.160, nr. 6 kr. 1.500, nr. 8 kr. 2.750 og nr. 10 kr. 3.875. Minni stærðirnar henta best í kinnalitinn og til að skyggja með en sá stærsti er bestur í púðrið. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Best er að hreinsa...

Sjá meira

“Long-form improv” námskeið í júní

Í „long-form improv“ búa leikararnir í sameiningu til um það bil hálftíma langa sýningu út frá t.d einu orði sem þeir fá frá áhorfendum. „Long-form improv“ er fyrir alla. Á fyrri námskeiðum hafa verið leikarar, dansarar, handritshöfundar, myndlistarmenn, grafískir hönnuðir og fleiri.Þetta er frábært verkfæri fyrir fólk til að öðlast öryggi í spunavinnu, fá þjálfun í að vera í núinu, hlusta, taka áhættu, bregðast við, treysta sjálfum sér og styðja aðra í hópnum. Dóra Jóhannsdóttir leikkona kennir á námskeiðunum. Hún býr um þessar mundir í New York þar sem hún er að læra og sýna þessa tegund af spuna...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert