Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Púður og kinnalitaburstar frá Grimas Burstarnir eru úr mjúku, eftirgefanlegu hrosshári og sérstaklega fínir til að bursta á púður, kinnalit og skyggingar. Burstarnir koma í 4 stærðum; nr. 4 kostar kr. 1.160, nr. 6 kr. 1.500, nr. 8 kr. 2.750 og nr. 10 kr. 3.875. Minni stærðirnar henta best í kinnalitinn og til að skyggja með en sá stærsti er bestur í púðrið. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Best er að hreinsa...

Sjá meira

“Long-form improv” námskeið í júní

Í „long-form improv“ búa leikararnir í sameiningu til um það bil hálftíma langa sýningu út frá t.d einu orði sem þeir fá frá áhorfendum. „Long-form improv“ er fyrir alla. Á fyrri námskeiðum hafa verið leikarar, dansarar, handritshöfundar, myndlistarmenn, grafískir hönnuðir og fleiri.Þetta er frábært verkfæri fyrir fólk til að öðlast öryggi í spunavinnu, fá þjálfun í að vera í núinu, hlusta, taka áhættu, bregðast við, treysta sjálfum sér og styðja aðra í hópnum. Dóra Jóhannsdóttir leikkona kennir á námskeiðunum. Hún býr um þessar mundir í New York þar sem hún er að læra og sýna þessa tegund af spuna...

Sjá meira

Leikhópurinn Lotta í Elliðaárdalnum

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hróa hött, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 28. maí, klukkan 18:00. Þetta er áttunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Að frumsýningu lokinni mun hópurinn í framhaldinu ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið. Höfundur Hróa hattar er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fjórða leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006....

Sjá meira

Aðalfundur Leikfélags Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar boðar til aðalfundar leikfélagsins laugardaginn 31. maí 2014, kl. 15:00. Aðalfundurinn verður haldinn í Gaflaraleikhúsinu, Strandgötu 50 í Hafnarfirði. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins:Kosning fundarstjóra og fundarritaraInntaka nýrra félagaSkýrsla formannsSkýrsla gjaldkera (bráðabirgðayfirlit)Kosning stjórnar og embættismanna sbr. 6. greinLagabreytingar sbr. 12. greinÁrgjaldÖnnur mál Komin er fram breyting á lögum félagsins sem lögð verður fyrir aðalfund. Lagabreytingin fylgir með í þessu fundarboði sem og lög félagsins og má nálgast þau í pdf formi með því að smella á tenglana hér að neðan.. Einungis skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Stjórn Leikfélags Hafnarfjarðar. http://leikhaf.is/wp-content/uploads/2014/05/Lo%CC%88g-Leikfe%CC%81lags-Hafnarfjar%C3%B0ar.pdf...

Sjá meira

Fanclub sýnir í Tjarnarbíó

Dansflokkurinn Fanclub sýnir verkið DEATH í Tjarnarbíó 29. og 30. maí. Dansflokkurinn Fanclub samanstendur af fjórum ungum konum sem fara sínar eigin leiðir og bjóða listamönnum sem þeim þykja spennandi í samstarf. Flokkurinn kynnir nú samstarf við tvo framsækna danshöfunda, Kim Hiorthøy (NO/SE) og Itamar Serussi (IL/NL), en sýningin er í tveimur hlutum og fjalla báðir um dauðann, þetta fyrirbæri sem við horfumst öll í augu við fyrr eða síðar.   Danshöfundarnir tveir hafa mjög ólíka stíla, og mynda bæði atriðin því áhugaverða heild, með sama rauða þráðinn. Annað atriðið er í formi söngleiks um daglegt líf, öll hversdagslegu...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert