Leikhópurinn Lotta í Elliðaárdalnum
Leikhópurinn Lotta frumsýnir Hróa hött, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 28. maí, klukkan 18:00. Þetta er áttunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Að frumsýningu lokinni mun hópurinn í framhaldinu ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið. Höfundur Hróa hattar er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fjórða leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006....
Sjá meira


