Author: lensherra

Arty Hour #4 í Tjarnarbíói

Arty Hour er að sanna sig sem vettvangur listamanna til að segja frá sér og kynnast verkum annarra. Eftir því sem verkin þróast er skemmtilegt að fylgjast með breytingunum, sjá þróunina úr hugmyndum í heil atriði úr verkunum. Fjórða listastundin verður haldin 19. júní í Tjarnarbíó. Sumir þeirra sem koma fram munu segja frá þróun verks frá því á Arty Hour #2 og sum munu kynna sig og verk sín í fyrsta sinn.  Stíga munu á stokk: * Leikhópurinn Ráðhildur með verk sitt Golden Age * Leikhópurinn Auðlind með nýtt leikverk, Róðarí, sem þau eru byrjuð að æfa *...

Sjá meira

Laust pláss á Sérnámskeiði fyrir leikara!

Alveg óvænt var að losna eitt pláss á Sérnámskeið í leiklist í Leiklistarskóla Bandalagsins sem settur verður laugardaginn 14. júní. Kennari er Rúnar Guðbrandsson. Opið er fyrir umsóknir til mánudagsins 9 júní (annar í hvítasunnu) – fyrstur kemur, fyrstur fær! Endilega dreifið þessum upplýsingum til félaga ykkar ef ske kynni að þar leyndist einhver áhugasamur sem getur stokkið á plássið með þessum stutta fyrirvara. Nánari upplýsingar hér.   ...

Sjá meira

Skiladagur styrkumsókna er 10. júní!

Skilaboð til aðildarfélaga Bandalags íslenskra leikfélaga: Athugið að síðasti skiladagur styrkumsókna vegna leikársins 2013-14 er þriðjudagurinn 10. júní. Heimilt er að póstleggja umsóknir þann dag. Og rétt er að ítreka að skrifstofa Bandalagsins og Leikhúsbúðin verða lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 5....

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Créme make-up frá Grimas Olíu og vaxbaseraður farði sem þekur vel – hið eina sanna leikhússmink. Litirnir blandast vel sem er forsenda þess að skyggingar o.þ.h. takist vel. Frábært t.d. þegar búa á til karaktera eða gera þarf leikara eldri en þeir eru. Ofnæmisprufaður farði án parabena, glutenlaus og án lyktarefna. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Við seljum Grimas Créme make-up í tveimur stærðum, 60 ml. og 15. ml. dósum. Þær stærri...

Sjá meira

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar 2014

Til­nefn­ing­ar til Grím­unn­ar, ís­lensku sviðslita­verðlaun­anna 2014, voru kunn­gjörðar í dag og hlaut Eld­raun­in Eld­raun­in eft­ir Arth­ur Miller í leik­stjórn Stef­ans Metz, í sviðssetn­ingu Þjóðleik­húss­ins, flest­ar til­nefn­ing­ar eða ell­efu tals­ins. Verðlaun­in verða veitt í 12. sinn við hátíðlega at­höfn á Stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins þann 16. júní nk. og sýnd í beinni út­send­ingu á RÚV. Næst­flest­ar til­nefn­ing­ar, eða 10, hlaut óper­an Ragn­heiður eft­ir Gunn­ar Þórðar­son og Friðrik Erl­ings­son í leik­stjórn Stef­áns Bald­urs­son­ar og í sviðsetn­ingu Íslensku óper­unn­ar. Sýn­ing­arn­ar Furðulegt hátta­lag hunds um nótt eft­ir Simon Stephens í leik­stjórn Hilm­ars Jóns­son­ar, í sviðsetn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins, og Gullna hliðið eft­ir Davíð Stef­áns­son í leik­stjórn Eg­ils...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert