Fréttir frá Íslensku óperunni
Á komandi haustmisseri verður ráðist í metnaðarfullt verkefni hjá Íslensku óperunni – sviðssetningu á einni af umfangsmestu óperum Verdis, Don Carlo, sem aldrei hefur verið sviðssett á Íslandi áður. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir sýningunni og hefur hún Pál Ragnarsson ljósahönnuð og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur búninga- og leikmyndahöfund sér til fulltingis. Guðmundur Óli Gunnarsson verður hljómsveitarstjóri. Flutt verður fjögurra þátta útgáfan af þessu mikla verki Verdi, og verður hún sungin á ítölsku með íslenskum skjátexta. Frumsýning verður í Eldborg í Hörpu 18. október og eru þrjár aðrar sýningar ráðgerðar, í október og nóvember. Eingöngu íslenskir söngvarar taka þátt í sýningunni og...
Sjá meira


