Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Foam Capsules frá Kryolan. Gelatínhylki fyllt með efni sem verður að hvítri froðu þegar hylkið er sett í munninn og bitið í sundur. Hver vill ekki geta froðufellt að vild? 10 hylki í dós kosta 2.272.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Hylkin og innihaldið er óhætt að gleypa. Varast skal að geyma hylkin í raka. Innihaldsefni: Sodium Bicarbonate, Sodium Lauryl Sulfate, Citric Acid, Sucrose, Dimethylimidazolidinone Rice Starch, Titanium Dioxide CI 77891 (EU...

Sjá meira

Ávörp á alþjóðlegum degi leiklistarinnar 27. mars 2015

Alþjóðlegi leiklistardagurinn er þann 27. mars, en hann hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1961. Það er Alþjóða Leiklistarstofunin ITI sem stendur fyrir verkefninu og viðburðum því tengdu. Á hverju ári hafa mikilsvirtir sviðslistamenn eða áhrifafólk úr öðrum geirum verið fengnir til að flytja hið alþjóðlega ávarp. Í ár er það pólski leikstjórinn Krzysztof Warlikowski sem semur alþjóðaávarpið. Leiklistasamband Íslands hefur haft þá venju að fá íslenskt sviðslistafólk til að semja íslenskt ávarp fyrir Alþjóðaleikhússdaginn og í ár er það Halldóra Geirharðsdóttir leikkona sem semur íslenska ávarpið. Og í fyrsta sinn eigum við áhugaleikhúsfólk okkar eigið ávarp en það samdi...

Sjá meira

Atry Hour #12 í Tjarnarbíói í kvöld

Tólfta listastundin verður sneisafull af spennandi sviðslistaverkum. Arty Hour er sá tími sem þeir listamenn sem annað hvort eru að vinna að verkum sínum og/eða sýna í Tjarnarbíó kynna, deila og opna fyrir umræður á hugmyndum sínum. Viðburðurinn er ekki einungis fyrir listamenn og áhorfendur heldur einfaldalega fyrir alla þá sem hafa áhuga. Listamennirnir munu ræða um þeirra sýn að breyta Tjarnarbíó í Undraland en þú þarft e.t.v. ekki að elta hvítu kanínuna til þess að uppgötva þínar eigin ormagryfjur! Dansandi dúett mælir vegalengdina á milli einstaklingsþarfa og þeirra sameiginlegu. Hvernig er hægt að láta vatn birtast í öllum...

Sjá meira

Barið í brestina, síðustu sýningar

Leikdeild Skallagríms sýnir um þessar mundir gamanleikinn Barið í brestina eftir Guðmund Ólafsson. Leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson. Sýnt er í Lyngbrekku og eru síðustu sýningar dagana 25. 26. og 27. mars og aukasýning 4. apríl. Leikritið gerist á sambyggðri heilsugæslustöð og elliheimili á einum degi, segir frá lífi fólksins sem þar býr og starfar og hvernig það leysir vandamál sem upp koma. Vandamál eins og til dæmis óvænta heimsókn heilbrigðisráðherrans til að skoða magaspeglunartæki sem hún (ráðherrann er kvenmaður) útvegaði sérstaklega fjárveitingu til kaupanna á. Bæjarstjórinn notaði hins vegar peningana til þess að efla knattspyrnulið staðarins og keypti færeyskan...

Sjá meira

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Moustache Wax frá Kryolan. Glært skeggvax notað til mótunar á skeggi, bæði ekta og gerfi – svona í tilefni af Mottumars. 6 ml. túba kostar 1.176.- Leikhúsbúðin er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is  ...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert