Þöggun á Möðruvöllum
Þöggun er saga þriggja skáldkvenna, Ólafar frá Hlöðum, Skáld Rósu og Guðnýjar frá Klömbrum. Verk um konur úr Eyjafirðinum, sem sáu um heimilið, búsýsluna og gerðu það sem ekki mátti, þær skrifuðu! Vakin er athygli á kvenskáldunum okkar. Bókmenntasagan skipar nefnilega ekki eintóm karlkynsskáld, þeirra minningu hefur hingað til bara verið haldið hærra á lofti. Réttum þessa skekkju af og minnumst allra skáldanna. Leikritið verður frumsýnt föstudaginn 27. mars. Ljóðskáldið Guðný Jónsdóttir var fyrst íslenskra kvenna til að fá birt eftir sig veraldlegt ljóð. Sagt er að hún hafi dáið úr sorg eftir að eiginmaður hennar yfirgaf hana og...
Sjá meira


