Leiklestur úr verkinu Lokaæfing
Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir næsta haust í Tjarnarbíói leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Leikarar munu leiklesa upp úr verkinu föstudaginn 19. júní kl. 17.40 í Ráðhúsinu og í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna mun gestum gefast kostur á að kaupa miða á sýninguna með 1.000 króna afslætti á staðnum í forsölu. Leikarar eru Nanna Kristín Magnúsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson og Kristín Pétursdóttir. Leikmynd verður í höndum Stígs Steinssonar en búninga sér Una Stígsdóttir um. Tinna Hrafnsdóttir leikstýrir og Sveinn Geirsson semur tónlist. Lokaæfing er eitt þekktasta leikverk Svövu og var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1983. Sú leikgerð sem hér...
Sjá meira


