Author: lensherra

MagnusMaria: Stutt, heit og hinsegin ópera

Magnus Maria er ný, norræn ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur við líbrettó Katarinu Gäddnäs. Óperan fjallar um mannréttindi, réttindi kvenna til að velja sér starf og fá sömu laun og karlmenn, rétt samkynhneigðra og kynskiptinga og hefur sterka skírskotun í dag. Sýnd í kl. 20.00 kvöld, 3. júní, í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Maria Johansdotter er hugrökk stúlka, ákveðin í að lifa lífi sínu sem sjálfstæð persóna og tónlistarmaður. Hún fylgir hjarta sínu og tekur afleiðingum gjörða sinna stolt. Þegar hún er ákærð fyrir að villa á sér heimildir, spyr dómarinn hana hvort hún sé meiri kona eða maður. Hún svarar...

Sjá meira

Vorverkin hjá Leikfélaginu Sýnum

Leikfélagið Sýnir sýnir fjögur ný stuttverk við leikskólann Steinahlíð (við austari enda Suðurlandsbrautar) laugardaginn 30. maí kl. 17.00. Sýningin útileiksýning og hefur hlotið samnefnið Vorverkin en verkin sem sýnd verða eru: Át-tak eftir Ólaf Þórðarson í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar Bláskaði eftir  Ármann Guðmundsson í leikstjórn höfundar Ferðamannastraumur eftir Aðalstein Jóhannsson í leikstjórn Ástu Elínardóttur Að undirbúa jarðveginn eftir Ástu Elínardóttur í leikstjórn höfundar Sýning tekur um 40 mínútur í flutningi og aðgangur er ókeypis. Aðeins verður þessi eina...

Sjá meira

Er ekki nóg að elska? síðasta sýning

Er ekki nóg að elska? er raunsæisleg og kraftmikil fjölskyldusaga sem lýsir fjölskylduátökum um leyndarmál sem ekki mega koma upp á yfirborðið því þau sverta þar með minningu mektarmanns. Jarðarför hans stendur fyrir dyrum og ekkjan berst hetjulega fyrir sóma hússins og minningu mikils stjórnmálamanns og hreinskiptins eiginmanns sem hefur gert afar óvenjulega kröfu í erfðaskránni. Birgir Sigurðsson er eitt fremsta núlifandi leikskáld okkar. Fyrsta leikrit hans, Pétur og Rúna, var sett á svið árið 1973. Leikritið vann til fyrstu verðlauna, ásamt Kertalogi Jökuls Jakobssonar, í leikritasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur í tilefni af 75 ára afmæli félagsins árið 1972. Dagur...

Sjá meira

Hið vikulega í Hafnarfirðinum

Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Hið vikulega, stuttverkadagskrá þar sem höfundar fengu viku til að skrifa og leikarar og leikstjórar hafa viku til að æfa og setja upp. Í þetta skiptið er sýningin bönnuð börnum innan 16 ára. Ókeypis inn og öllum boðið (eldri en 16 ára). Sýningin byrjar kl. 20.00. Sýnt er í Gaflaraleikhúsinu, Víkingastræti 2. Aðeins þessi eina...

Sjá meira

Ást í meindýrum

Leikfélag Kópavogs frumsýnir leikdagskrána Ást í meindýrum fimmtudaginn 28. maí kl. 20.00. Þættirnir sem verða fluttir eru Ást í hraðbanka, Á veröndinni einn bjartan vormorgun, Bóksalinn, Líflína og Meindýr. Níu leikarar undir stjórn þriggja leikstjóra taka þátt. Dagskráin verður aðeins sýnd tvisvar og verður seinni sýningin laugardaginn 30. maí kl. 20.00. Félagsmenn eiga að venju frímiða á sýninguna en almennt verð er 1.000 kr. Miðapantanir sendist í netfangið midasala@kopleik.is. Níu leikarar taka þátt í leikþáttunum. Höfundar þáttanna, leikarar og leikstjórar eru: Ást í hraðbanka e. Bjarna Guðmarsson Leikarar: Helgi Davíðsson Sunneva Lind Ólafsdóttir Leikstjórn: Hörður Sigurðarson Á veröndinni einn...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert