Author: lensherra

Bjart með köflum í Freyvangi

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld söngleikinn Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Bjart með köflum er söngleikur með tónlist frá hippatímabilinu. Í sýningunni eru lög á borð við; Leyndarmál, Glugginn, Dimmar rósir, Ég elska alla, Undarlegt með unga menn og fleiri lög frá því tímabili. Sögusviðið er líka frá þeim tíma. Jakob er 17 ára strákur sem kemur úr Reykjavík og ræður sig í vinnumennsku á Gili. Sá sveitabær er frekar ástand en heimili. Ekkert rafmagn, ekkert klósett og amman á bænum sefur í líkkistu. Á bænum býr m.a. ung stúlka, Gunnvör og henni líst vel...

Sjá meira

NEATA stuttverkahátíðin í Færeyjum

Stuttverkahátíð NEATA (II Official NEATA Short Play Festival) verður haldin í Þórshöfn í Færeyjum 7. og 8. október 2016. Reglur og upplýsingar fyrir umsókn: – Hátíðin verður haldin í Færeyjum dagana 7. og 8. október 2016 – Hvert aðildarland má koma með mest 3 stuttverk – Öll verkin verða að vera nýskrifuð – Hvert verk má að hámarki vera 15 mín. í sýningu – Halda þarf kröfum varðandi ljós og aðra tækni í lágmarki – Það verða aðeins gefnar 5 mín. í skiptingar milli þátta – Hátíðarhaldarar gera þær kröfur til sýninganna að þær séu sjónrænar og auðskildar áhorfendum...

Sjá meira

Gripahúsið í Tjarnarbíó

Nýtt, íslenskt leikverk um hina íslensku bjartsýni. Frumsýnt í Tjarnarbíó föstudaginn 26. febrúar. Gripahúsið er nýtt íslenskt leikverk eftir Bjartmar Þórðarson. Verkið er unnið frá upphafi til enda í Tjarnarbíó en Bjartmar skrifaði verkið í rithöfundavinnustofu sem Tjarnarbíó býður upp á fyrir sviðshöfunda. Gripahúsið er svört kómedía og samfélagsrýni sem fjallar um þá hringrás staurblindrar bjartsýni og hruns sem við sjáum birtast í þjóðfélaginu trekk í trekk. Verkið fjallar um einstæðu móðurina Védísi og þrjú uppkomin börn hennar sem hírast í fátækt á leigubýli lengst uppi á heiði, með flatskjá og ferðabæklinga sér til huggunar. Þrátt fyrir að allt virðist...

Sjá meira

Kirsuberjagarður á bökkum Ölfusár

Leikfélag Selfoss Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Tsjekhov. Þýðing Jónas Kristjánsson. Leikstjórn Rúnar Guðbrandsson Það var hátíðleg stemming í Litla leikhúsinu við Sigtún á Selfossi á frumsýningu á Kirsjuberjagarðinum 19. feb. s.l. Það heyrðist strax á samræðunum í anddyri leikhússins að hér voru kröfuharðir áhorfendur á ferð. Þegar boðið er upp á sjálfan Tsjekhov og Rúnar Guðbrandsson er fenginn til að stýra hinum skrautlega leikhópi Selfyssinga er ljóst að menn munu ekki sætta sig við neina meðalmennsku. Ég setti mig strax í dramatískar stellingar, enda er Kirsjuberjagarðurinn mesta stofudrama heimsbókmenntanna. Strax og ljósin kviknuðu var þó ljóst að eitthvað nýstárlegt var...

Sjá meira

Skugga-Baldur sviðsettur í Reykjavík

Ný leikgerð byggð á skáldsögunni Skugga-Baldur eftir Sjón verður frumsýnd í Hafnarhúsinu 4. mars. Leikgerðin er skrifuð af Kamilu Polívková, sem leikstýrir verkinu, og Teru Hof sem einnig er leikari verksins. Aðrir sem koma að listrænni hlið verksins eru m.a. myndlistar- og tónlistarmennirnir Jón Sæmundur og Ryan van Kriedt og Sindri Ploder, ungur listamaður með Downs heilkenni eins og Abba, sem er ein af þremur aðalpersónum sögunnar. Verkið verður fyrst sett upp í Prag í lok febrúar og svo í Hafnarhúsinu í Reykjavík og verður sýnt þar frá 3. – 8. mars. Hin mikilvægu einkunnarorð „omnia mutantur – nihil...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert