Author: lensherra

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni á í Tjarnarbíói miðvikudaginn 19. apríl næstkomandi. Handritin verða send til þeirra án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar verkanna þriggja, sem valin verða, nafngreindir á sýningarkvöldinu og á...

Sjá meira

Uppspuni frá rótum á Selfossi

Leikfélag Selfoss frumsýnir verkið Uppspuna frá rótum föstudaginn 24. febrúar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þeir hafa samið fjölda leikrita saman og í sitthvoru lagi. Auk þess eru þeir allir meðlimir í hinni stórskemmtilegu hljómsveit Ljótu hálfvitunum. Verkið er fjölskyldusaga þar sem saman eru komnir fjórir ættliðir og hefst þegar Sigurður gamli, sem var í senn eiginmaður, pabbi, afi og langafi annarra persóna verksins, er nýlátinn. Fjölskyldusagan er rakin í grófum dráttum í öfugri tímalínu og spannar mestalla 20. öldina. Þar skiptast á skin og skúrir í...

Sjá meira

Svefnlausi brúðguminn í Borg, Grímsnesi

Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon. Leik­rit­ið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vand­ræðum með nýja tengda­syni sem eru að koma inn í fjöl­skylduna. Frumsýning föstudag 17.2. kl. 20.00 2. sýning sunnudag 19.2. kl. 16.00 3. sýning fimmtudag 23.2. kl. 20.00 4. sýning föstudag 24.2. kl. 20.00 5. sýning sunnudag 26.2. kl....

Sjá meira

Listin að lifa í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss frumsýnir Listina að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur laugardaginn 25. febrúar. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Frumsýning laugardaginn 25. febrúar 2. sýning mánudaginn 27. febrúar 3. sýning fimmtudaginn 2. mars 4. sýning föstudaginn 3. mars 5. sýning mánudaginn 6. mars Sýnt í Versölum, Þorlákshöfn. Allar sýningar hefjast klukkan 20:00. Miðasala í síma 693-2993 og á leikfjelag@gmail.com. Miðaverð kr....

Sjá meira

Lilli og Mikki flytja á Þingeyri

Leikdeild Höfrungs á Þingeyri hefur vakið athygli síðustu ár fyrir sérlega vandaðar og ævintýralegar fjölskyldu leiksýningar. Fyrst var það hin óborganlega Lína Langsokkur þar á eftir Galdrakarlinn í Oz og í fyrra var það hinn dásamlegi Kardemommubær eftir Thorbjörn Egner. Enn leitar leikdeildin í sjóð Egners því nú á að taka hitt leikritið og færa á fjalirnar. Nefnilega Dýrin í Hálsaskógi. Sérstakur kynningarfundur um þessa stóru og miklu uppfærslu er laugardaginn 25. febrúar kl. 13.01 í Stefánsbúð á Þingeyri. Allir eru velkomnir hvort heldur sem fólk vill leika, smíða, sauma, mála eða bara forvitnast um verkefnið. Í framhaldinu hefjast...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert