Author: lensherra

Leikritunarvinnusmiðja Lakehouse og MAk

Þann 6. maí næstkomandi verður spennandi leikritunarvinnusmiðja á vegum Lakehouse og MAk í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Þar gefst þátttakendum kostur á að bæta verk sín með æfingum, spuna og umræðum. Það er Árni Kristjánsson höfundur og leikstjóri sem leiðir námskeiðið en hann vann Grímuna á sínum tíma fyrir útvarpsverkið Söngur hrafnanna. Árni er útskrifaður leikstjóri frá Bristol Old Vic og er listrænn stjórnandi Lakehouse. Árni hefur kennt leikritun í Kvikmyndaskólanum, Tjarnarbíói og á vinnusmiðju á Vestfjörðum. ‘Það eru ótal margir efnilegir höfundar um allt land. Mörg þeirra pikkföst með eina eða þúsund frábærar hugmyndir í skúffunni. Mitt markmið er...

Sjá meira

Ný íslensk ópera í Iðnó um helgina

Föstudaginn 6. apríl frumsýnir Menntaskóli í tónlist nýja óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Verkið heitir „Fjóla, stjúpa, puntstrá og prins“. Það gerist í tónlistarskóla sem er í miklum kröggum, skólastjórinn er þunglyndur og hefur misst trúna á tónlistina. Til þess að bæta ástandið ákveða nemendur að setja upp ævintýraóperu um ráðvilltan prins sem fær það verkefni að velja sér konu á miklum dansleik. Þangað mæta áfjáðar stúlkur og grimmar stjúpur auk veiðimanns og úr verður mikil flækja. Inn í þetta allt saman fléttast svo ástamál nemendanna í skólanum. Tuttugu söngvarar koma fram í sýningunni auk níu manna hljómsveitar undir stjórn...

Sjá meira

Aðalfundur, Stuttverkahátíð og spennandi fyrirlestrar

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Logalandi í Borgarfirði dagana 5. og 6. maí nk. Í tengslum við aðalfundinn verður haldin stuttverkahátíð föstudaginn 4. maí og á laugardagsmorgninum 5. maí verða 4 fyrirlestrar varðandi net- og tæknimál. Stuttverkahátíðin verður sett kl. 20.00 föstudaginn 4. maí stendur fram eftir kvöldi. Tilkynna þarf verk á Stuttverkahátíðina fyrir 1. maí. Að venju er beðið um sýningar sem þurfa lítinn umbúnað og eru ekki lengri er 15 mín. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 9.30 laugardaginn 5. maí: 1) Vefur leikfélagsins – Hörður Sigurðarson Hvernig eiginn vefur nýtist leikfélaginu fyrir kynningu, skipulag og varðveislu gagna....

Sjá meira

35 x Ég og nokkrar leikkonur

Sýnt í Tjarnarbíói 24. og 25. mars nk. Haustið 2016 kallaði finnska leikdúóið Blaue Frau eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum fyrir sýninguna þeirra “35 X ÉG OG NOKKRAR LEIKKONUR”. Þeir sem sóttu um fengu það verkefni að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast í starfi þeirra sem leikkona. Blaue Frau hlaut alls 139 umsóknir frá Norrænum leikkonum sem allar virtust eiga í svipuðum vanda. Í kjölfar opna kallsins eftir samstarfi, voru fimm leikkonur valdar til þess að taka þátt í, og skapa þessa gagnvirku þátttöku leiksýningu. Í nútíma samfélagi er það ekki einungis leikarinn...

Sjá meira

Rauða skáldahúsið: Sjón & Dauðasyndirnar sjö

 „En ég vil ekki þægindi. Ég vil Guð, ég vil skáldskap, ég vil raunverulega hættu, ég vil frelsi, ég vil gæsku. Ég vil synd.“ — Aldous Huxley, Veröld ný og góð. 29. mars opnar Rauða Skáldahúsið dyr sínar á ný til að fagna dauðasyndunum sjö. Frelsaðu og fullnægðu fýsnum þínum með ljóðlist í einrúmi á framandi málum þessa heims – og ef til vil þess næsta. Gerðu samning við Mephistopheles – seldu sálu þína fyrir syndsamlega líkamsmálningu Violet Fire. Leyfðu dansinum að duna með lifandi tónlist The Keystone Swingers og Gleðikvennanna, undir dáleiðslu fimleikara og tælandi burlesque dansara. Einkaljóðalestrar...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert