Ljóðahugleiðsla um frið og kærleika
Fimmtudaginn 11. október, í friðarviku Reykjavíkurborgar, stendur Eyrún Ósk Jónsdóttir, skáld og leikkona fyrir friðar-ljóðagjörning í Menningarsetri SGI búddistasamtakanna Laugavegi 178. Um er að ræða eins konar ljóða-hugleiðslu þar sem flytjandinn leiðir áhorfendur í einskonar kyrrðar ferðalag með ljóðaupplestri en öll ljóðin fjalla um frið og kærleika og sannkölluð kyrrðar tónlist ómar undir upplestrinum. Áhugaverð og nýstárleg tilraun með gjörninga og ljóðlistina. Leikstjóri er Hildur Kristín Thorstensen en tónlistina samdi Viktor Aron Bragason. Öll ljóðin eru eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Verkið var áður flutt á alþjóða friðardaginn í Fríkirkju Hafnarfjarðar og á fjáröflunarkvöldverði hjá Múltíkúltí. ,,Það hljómar kannski eins og...
Sjá meira


