Author: lensherra

Leikið í Litháen

Leiklistarhátíð NEATA fór fram í Anyksciai í Litháen fyrr í mánuðinum og var sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn, framlag Íslands. Sýningin hlaut frábærar viðtökur og nú þegar er leikfélagið með opin boð á leiklistarhátíðar í Rússlandi og Litháen. NEATA eru samtök áhugaleikhússsambanda á Norðurlöndum og Baltnesku ríkjunum og halda samtökin leiklistarhátíð á 2 ára fresti. Ellefu leiksýningar voru á hátíðinni og voru þær eins fjölbreyttar og þær voru margar. Einnig voru umræðufundir um sýningarnar, vinnustofur með hópunum og síðast en ekki síst hátíðaklúbburinn þar sem mikið var skrafað og planað um leiklist og eitthvað var einnig um dans og...

Sjá meira

Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra

Bandalag íslenska leikfélaga auglýsir eftir framkvæmdastjóra í 100% starf frá 1. janúar 2019. Framkvæmdastjóri vinnur í umboði stjórnar Bandalagsins og eru verkefni hans m.a.: Daglegur rekstur skrifstofu og verslunar með áherslu á þjónustu við aðildarfélög og aðra sem eftir henni leita. Sér um Leiklistarvef, handritasafn, vefverslun og innkaup. Bókhald og reikningsskil ásamt uppsetningu ársrits. Erlend samskipti. Undirbýr fundi og kemur að öllum stærstu verkefnum Bandalagsins s.s. leiklistarskóla, leiklistarhátiðum, o.s.frv. Hæfniskröfur: Yfirgripsmikil þekking á starfsemi leikfélaga og Bandalags íslenskra leikfélaga og hæfni til að vinna sjálfstætt. Góð tölvukunnátta og að geta unnið sjálfstætt í margskonar forritum. Góð þekking á bókhaldi...

Sjá meira

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra fyrir haustverkefni félagsins sem verður barnaverkið Glanni glæpur í Latabæ eftir Magnús Scheving. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. september og vinna í u.þ.b. 8 vikur. Umsóknir með ferilskrá og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelagve@outlook.com fyrir 25....

Sjá meira

Gutti & Selma og ævintýrabókin í Eyjafirði

Í ágúst verður frumsýnt nýtt íslenskt barnaleikrit í Laugaborg í Eyjafirði. Það heitir Gutti & Selma og ævintýrabókin, eftir Pétur Guðjónsson. Það er hópur sem kallar sig Draumaleikhúsið sem setur upp sýninguna sem er í samvinnu við Handverkshátíð Eyjafjarðar sem haldin er á Hrafnagili. Leikritið er 40 mínútna langt en fullt af lífi og fjöri. Þar segir frá systkinum Gutta og Selmu sem eru 8 og 10 ára. Þau finna ævintýrabók og upp úr henni koma ýmsar persónur sem í fyrstu þykja afar spennandi en svo fer gamanið að kárna þegar tröll og ýmsar kynjaverur koma út úr bókinni....

Sjá meira

Uppfærslur á vefnum

Fyrir dyrum standa uppfærslur á Leiklistarvefnum. Verið getur að vefurinn verði niðri af og til í 1-2 daga meðan á uppfærslum stendur. Við vonumst til að allt verði komið í lag strax eftir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert