Author: lensherra

Lokahátíð Þjóðleiks á Hólmavík 30. apríl – 1. maí

Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni að frumkvæði Þjóðleikhússins og í góðu samstarfi við menningarráð og marga aðra aðila á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Lokahátíðir eru haldnar að vori þar sem allar sýningar í hverjum landsfjórðungi koma saman á stórri leiklistarhátíð. Í ár er Þjóðleikur 10 ára og verður haldinn með pompi og pragt. Lokahátíðin Þjóðleikur NorðVestur verður haldin hátíðleg í Félagsheimilinu á Hólmavík 30. apríl og 1. maí...

Sjá meira

Leitin að sumrinu á Sólheimum

Í ár setur Sólheimaleikhúsið upp skemmtilega sýningu sem fjallar um hann Jón sem þekkir ekki annað en eilíft sumar. Dag einn fara skrýtnar persónur að ryðjast inn í líf hans, hver á fætur annarri og skipta um árstíðir. Jón er í fyrstu alls ekki sáttur við þessar breytingar, en lærir smám saman að hver árstíð hefur sína kosti og galla. Höfundar eru leikstjórinn Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson ásamt Ástþóri Ágústsyni og Magnúsi Guðmundssyni og tónlistina semur Hallbjörn V. Rúnarsson forstöðuþroskaþjálfi á Sólheimum. Rúmur helmingur íbúa og starfsmanna Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni. Þessi sýning, eins og aðrar, hjá Leikfélagi Sólheima er...

Sjá meira

Hárið í Húnaþingi

Árið er 1967 og hipparnir í New York ætla sér að breyta heiminum. Þau eru villt, frjáls og sameinuð í mótmælum og söng, í skugga Víetnamsstríðsins. Leikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir hinn heimsþekkta söngleik Hárið annað kvöld, miðvikudagskvöldið 17. apríl. Þátttakendur í sýningunni eru 41 alls, allt heimafólk að undanskilinni Cassy Newby sem kemur frá London en hún hefur séð um dansa ásamt leikstjóranum, Sigurði Líndal Þórissyni. Æfingar hafa staðið yfir frá því í desember sl. Þátttakendur eru á aldrinum 15-67 ára. Til gamans má nefna í kór og danshópnum eru mæðgurnar Kristín Guðmundsdóttir og Sunneva Þorvaldsdóttir. Kórstjórar eru Ólafur Rúnarsson og...

Sjá meira

Leikhús í sýndarveruleika

Leiksýningin Kassinn er sérstök að því leiti að hún fer fram í sýndarveruleika, og er fyrsta sýndarveruleikhússýning Íslands. Íslensk/breski listhópurinn Huldufugl framleiðir verkið, sem er 20 mínútur að lengd og einungis fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin varð hlutskörpust af tugum sýninga á tölvuleikjahátíðinni A Maze sem fram fór í Berlín nú á dögunum, og hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar sem nefnast „Most Amazing Game Award“. A Maze er vel þekkt hátíð innan tölvuleikjaheimsins, og hefur verið starfandi í 8 ár. Ásamt verðlaunagrip fékk Huldufugl peningaverðlaun að andvirði 3000 Evra. Kassinn fór fyrst fram utandyra við Hlemm á Menningarnótt 2017, en...

Sjá meira

Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2019

LOKAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR UMSÓKNIR! Frestur til að skila umsóknum vegna Athyglisverðustu áhugaleiksýningar ársins rennur út 23. apríl. Fulltrúi Þjóðleikhússins mun tilkynna val dómnefndar á aðalfundi BÍL á Húsavík 5. maí. Sækja skal um á Leiklistarvefnum. Minnt er á að einungis er hægt að skila upptökum á YouTube eða...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert