Huldufugl sópar að sér verðlaunum
Íslenski/breski listhópurinn Huldufugl hefur nýlokið mánaðar ferðalagi um Bretland og Bandaríkin með leiksýninguna Kassann. Sýningin fer fram í sýndarveruleika, og er aðeins fyrir einn áhorfanda í einu. Sýningin var frumsýnd á Reykjavík Fringe Festival fyrir ári síðan, en hefur tekið þó nokkrum breytingum á undanförnu ári og mætti segja að hún verði frumsýnd að nýju á Íslandi í þarnæstu viku. Á síðastliðnu ári hefur sýningin farið til Stokkhólms, Berlínar, Brighton, London, Los Angeles og San Diego og hefur hvarvetna selst upp á örskotsstundu og sýningin hlotið lof gagnrýnenda. Einnig hefur sýningin unnið til verðlauna á þeim hátíðum sem hún hefur...
Sjá meira


