Litla hafmeyjan frumsýnd á laugardag
Þrettánda sumarið í röð leggur Leikhópurinn Lotta land undir fót og ferðast með glænýja fjölskyldusýningu um landið þvert og endilangt. Í sumar er það Litla hafmeyjan sem syndir um landið og gleður landsmenn á öllum aldri með ævintýrum sínum. Sagan um Litlu hafmeyjuna gerist inni í Ævintýraskóginum eins og Lottu er von og visa en eðli málsins samkvæmt höldum við okkur ekki bara inni í skóginum heldur dýfum okkur á bólakaf í sjóinn sem umlykur hann. Þar kynnumst við hafbúum, þeim Báru, Sævari og Öldu, ásamt ógurlegum kolkrabba sem á gullfiska að gæludýrum. Sagan ber okkur einnig upp á...
Sjá meira


