Author: lensherra

Hugleikur í Þjóðleikhúskjallaranum

Í fyrravetur gekk Hugleikur til samstarfs við Þjóðleikhúskjallarann og sýndi þar sjö sýningar undir nafninu Þetta mánaðarlega. Þar var um að ræða einþáttungasýningar, eitt klukkutímalangt óperuþykkni, eina klukkutíma leiksýningu, auk þess sem margar sýninganna voru kryddaðar með tónlist af ýmsu tagi. Verkefninu lauk síðan í maí með tónlistardagskrá þar sem rifjuð var upp tónlist úr ýmsum verkum Hugleiks. Ákveðið hefur verið að endurtaka leikinn með fimm til sex dagskrám í vetur. Höfundahópi Hugleiks hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu. Einn af vaxtarbroddum félagsins hefur verið ritun stuttverka. Uppsetningar stuttverka er leikhúsform sem meira hefur farið fyrir hjá áhugaleikfélögum...

Sjá meira

Gosi á Sauðárkróki

Leikfélag Sauðárkróks hefur hafið æfingar á söngleiknum um hinn eina sanna spýtustrák Gosa.  Leikverkið er eftir Brynju Benediktsdóttur með söngvum eftir Þórarinn Eldjárn við tónlist Sigurðar Rúnars Jónssonar.  Leikstjórn er í öruggum höndum Þrastar Guðbjartssonar, en leikendur og aðrir aðstandendur sýningarinnar eru ungir og gamlir, reyndir og óreyndir, af ýmsum ættum og úr mörgum héruðum. Frumsýnt verður laugardaginn 21. október 2006 í félagsheimilinu Bifröst, nánar auglýst...

Sjá meira

Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu

Föstudaginn 29. september n.k. frumsýnir Þjóðleikhúsið Sitji guðs englar eftir Guðrúnu Helgadóttur í leikgerð Illuga Jökulssonar og leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar. Leikgerðin er byggð á þremur bókum Guðrúnar, Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikritið gerist í íslensku sjávarþorpi í síðari heimsstyrjöldinni og miðpunkturinn er barnmörg stórfjölskylda. Gegnum litríkt líf hennar kynnast áhorfendur tíðaranda stríðsáranna, átakanlegum atburðum og skrautlegum uppákomum. Þetta er leiksýning fyrir alla fjölskylduna sem vekur upp áleitnar spurningar um tengsl fortíðar og nútíðar. Verk Guðrúnar Helgadóttur eru þjóðinni hjartfólgin og bækur hennar hafa verið lesnar upp til agna af mörgum kynslóðum. Hún er...

Sjá meira

Leikritunarnámskeið hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs verður með námskeð í leikritun bráðlega og stjórn þess verður í styrkum höndum Hrefnu Friðriksdóttur. Á námskeiðinu verður farið í leikritun og verður sjónum einkum beint að skrifum á styttri verkum/einþáttungum. Námskeiðið verður 30 klst. og verður á eftirfarandi tímum:Laugardaginn 23. september kl. 10-16Sunnudaginn 24. september kl. 10-16Þriðjudaginn 3. október kl. 20-23 (getur breyst)Laugardaginn 7. október kl. 10-16Sunnudaginn 8. október kl. 10-16Fimmtudagurinn 12. október kl. 20-23Þetta verða semsagt tvær helgar og tveir dagar.Námskeiðið kostar ekkert fyrir félagsmenn en 3000 kr. fyrir aðra, og félagsmenn hafa forgang við innritun á námskeiðið. Þeir sem ekki hafa enn greitt félagsgjöldin ættu því að gera það hið snarasta.Þátttökubeiðnir og fyrirspurnir skal senda á netfangið...

Sjá meira

Systur – Verðlaunaverk Hugleiks aftur á fjalirnar

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi leikritið Systur eftir Þórunni Guðmundsdóttur í Möguleikhúsinu síðastliðið vor. Sýningin fékk frábæra dóma og mjög góða viðtökur, og af því tilefni hyggst félagið sýna fimm sýningar á verkinu í haust. Endurfrumsýningin verður sunnudaginn 24. september og sú síðasta föstudaginn 20. október. Verkið segir frá þremur systrum sem koma saman á æskuheimili sínu til að ganga frá innbúinu, en faðir þeirra liggur fyrir dauðanum. En eftir því sem þær róta dýpra í dótið birtist fortíðin. Gamlar erjur vakna, gleymdir atburðir rifjast upp og ekkert verður aftur eins og það var. Fjórar af öflugustu leikkonum Hugleiks túlka persónurnar,...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert