Æfingar hafnar hjá Halaleikhópnum
Batnandi maður er nafnið á leikritinu sem Ármann Guðmundsson er að skrifa og leikstýra hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Í tilefni 15 ára afmælis Halaleikhópsins var ákveðið að fá Ármann til að vinna afmælissýningu en stefnt er að frumsýningu hennar undir lok febrúar. Á annan tug leikara fara með hlutverk í leikritinu og verður það sýnt í Halanum, Hátúni 12. Batnandi maður fjallar á gráglettinn hátt um sjómanninn Sigmar sem fengið hefur nóg af sjómennsku og sér tækifæri þegar hann lendir í vinnuslysi til þess að láta úrskurða sig öryrkja og njóta þannig lífsins á kostnað skattborgaranna. Hann sogast...
Sjá meira


