Draugadans
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sviðsetur Djáknann á Myrká og Miklubæjar Sólveigu auk fjölda annara sagna, sögurnar fléttast saman og bakkabræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi létta á atburðarrásinni með sínum hætti. Þessar sögur eru á við mjög góða spennumynd. Með nútíma sviðstækni lifna þær við með ljósum, tónlist og litum. Sýningin er full af fallegum textum eftir Davíð Stefánsson, Stein Steinarr og önnur þjóðskáld auk texta eftir hópinn. Leikritið reynir á líkamlega færni, þetta er sannkallaður draugadans. Síðustu 3 mánuði hafa nemendur MH verið að vinna að þessu verkefni og frá 18.desember hafa allir nemendurnir æft stíft 7 tíma á dag (frí á aðfangadag, jóladag og gamlaársdag). Tónlistin í sýningunni er útfærð af Helga Rafni og má þar heyra lög á borð við Móðir mín í kví kví, Garún, Sofðu unga ástin mín og svo nýja tónlist eftir Helga. Þátttakendur eru yfir 50 frá MH, leikarar, kór og hljómsveit. Leikgerð og leikstjórn: Jón Gunnar Þórðarson Tónlist: Helgi Rafn Ingvason Sögurnar sem unnið er með: Miklubæjar-Sólveig, Djákninn á Myrká, Móðir mín í kví kví, Fjalla-Eyvindur, Parthúsa Jón, Draugshúfan og Bakkabræður. Ef farið er á internetið og googlað orðunum Ghost stories kemur fyrsti valmöguleikinn: Icelandic ghost stories. Hvergi í heiminum virðast vera eins margar draugasögur og á Íslandi. Þær lifa með íslensku þjóðinni og flytjast frá kynslóð til kynslóðar. Af hverju eru Íslendingar svona mikið fyrir draugasögur? Draugasögur væru ekki til...
Sjá meira


