Author: lensherra

Bingó!

Hugleikur og Leikfélag Kópavogs hafa nú hafið samstarf í annað sinn. Hafnar eru æfingar á verkinu Bingó eftir Hrefnu Friðriksdóttur. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Þetta er frumuppfærsla verksins. Í leikritinu Bingó sameinast fimm manneskjur við þá heimsþekktu dægradvöl að spila bingó. Þau bregðast við þeim tölum sem koma upp og rifja upp lífið sitt. Spurningin er: Ef þú vandar þig eins og þú getur muntu þá örugglega vinna – eða skiptir engu máli hvað þú gerir? Dreymir ekki alla um að vinna stóra vinninginn? Um tónlist í verkinu sjá Sváfnir Sigurðarson og Ágústa Eva Erlendsdóttir og áætluð frumsýning er...

Sjá meira

Langafi prakkari aftur í Möguleikhúsinu

Möguleikhúsið hefur nú hafið sýningar á hinu vinsæla barnaleikriti “Langafa prakkara” sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns. Leikritið var fyrst sýnt á vegum Möguleikhússins á árunum 1999 til 2001 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins. Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á...

Sjá meira

Hvað á nýtt dansleikhús LR og Íd að heita?

Dansleikhússamkeppni LR og ÍD verður haldin í fimmta sinn nú í júní.  Dansleikhús er vaxandi listform en  tilgangur keppni af þessu tagi er að  styðja undir þetta form, kanna möguleika þess og veita listamönnum tækifæri til að kynnast greininni betur.  Mikill áhugi er á dansleikhúsi meðal listamanna en umsækjendur hafa verið úr myndlist, tónlist, dansi og leiklist. Síðastliðið ár bárust rúmlega þrjátíu hugmyndir í keppnina. Keppnin hefur verið geysivinsæl meðal áhorfenda og erfitt getur verið að næla sér í miða á þennan skemmtilega viðburð. Er það vilji Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins að festa keppnina enn frekar í sessi...

Sjá meira

Samlestur á Gretti í Borgarleikhúsinu

Fimmtudag 1. febrúar verður haldinn opinn samlestur á Gretti á Stóra sviði Borgarleikhússins. Lesturinn hefst klukkan 10.00   Þetta er sögulegur atburður þar sem einvala lið leikara sameinar krafta sína í þessum frábæra söngleik undir styrkri stjórn Rúnas Freys Gíslasonar. Meðfylgjandi mynd er af Sigurveigu Jónsdóttur og Jóni Sigurbjörnssyni í hlutverkum sínum í uppfærslu verksins í Austurbæjarbíói 1980. Söngleikur sem fjallar um hinn lánlausa Gretti. Hann er skotspænir félaga sinna vegna þess hversu einfaldur hann er og hversu mikil bleyða hann er. Þá er hann uppgötvaður og fær hlutverk í sjónvarpsseríu byggða á Íslendingasögunni um Gretti Sterka. Hann nær...

Sjá meira

Nýtt verk frumsýnt í Borgarleikhúsinu

Um síðustu helgi var frumsýnt í Borgarleikhúsinu leikritið Eilíf hamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson. Uppsetningin er samstarfsverkefni Hins Lifandi Leikhúss og Borgarleikhússins og er sýnt á litla sviðinu. Leikstjóri er Þorleifur Arnarson. Eilíf Hamingja er verk um millistjórnendastéttina, hina nýju íslensku alþýðu. Eilíf hamingja er fyrsta íslenska millistjórnendadramað. Það segir frá fjórum einstaklingum, 3 körlum og konu, sem vinna saman í markaðsdeild stórfyrirtækis á Íslandi. ímynd fyrirtækisins hrundi er eigandi þess skildi við eiginkonuna og nú þarf markaðsdeildin að redda nýrri ímynd. Þau leita svífast einskis í leit sinni enda er um meira að ræða...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert