Author: lensherra

Leikfélag Fljótsdalshéraðs í Þjóðleikhúsinu

Loksins geta leikhúsunnendur barið augum sýninguna dularfullu sem hreppti titilinn Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins í árlegri samkeppni Þjóðleikhússins. Sýningar verða tvær, fimmtudag 7. júní og föstudag 8. júní og er þegar uppselt á fyrri sýninguna. Miðapantanir eru hjá miðasölu Þjóðleikhússin. Listin að lifa var sett upp í tilefni af 40 ára afmæli Leikfélags Fljótsdalshéraðs. Í tilefni þessa merkisafmælis ákvað stjórn félagsins að láta skrifa fyrir sig leikrit. Til þess var ráðið eitt af afsprengjum leikfélagsins. Þetta er í fyrsta sinn sem Leikfélag Fljótsdalshéraðs verður fyrir valinu í vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins. Höfundur verksins, Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, er frá...

Sjá meira

Tilnefningar til Grímunnar 2007

Tilnefningar til Grímunnar – Íslensku leiklistarverðlaunanna 2007 voru gerðar opinberar í Íslensku óperunni föstudaginn 1. júní. Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sem jafnframt er verndari Grímunnar, afhenti þeim listamönnum viðurkenningar er tilnefningar hlutu. Eftirfarandi leiksýningar eru tilnefndar sem:   SÝNING ÁRSINS DAGUR VONAR eftir Birgi Sigurðsson Leikfélag Reykjavíkur KILLER JOE eftir Tracy Letts Leikhúsið Skámáni LEG eftir Hugleik Dagsson Þjóðleikhúsið MR. SKALLAGRÍMSSON eftir Benedikt Erlingsson Söguleikhús Landnámsseturs ÓFAGRA VERÖLD eftir Anthony Neilson Leikfélag Reykjavíkur ÚTVARPSVERK ÁRSINS Ekki tala! eftir Gunnar Inga Gunnsteinsson í leikstjórn Hjálmars Hjálmarssonar. Leikendur: Birgitta Birgisdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Halldóra Malín Pétursdóttir, Jörundur Ragnarsson, Magnea Björk...

Sjá meira

Limbó í Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar kynnir leiksýninguna Limbó í leikstjórn Jóns Inga Hákonarsonar. Um er að ræða fjölbreytta og skemmtilega stuttverkadagskrá sem gerist í undraheimum Limbó. Sjö verk eru á dagskránni eftir fimm höfunda. Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni en æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun maí mánaðar. Um hönnun á sviðsmynd sá Bjarni Þór Pétursson en ljósahönnun var í höndum Björns Elvars Sigmarssonar.   Verkin í sýningunni eru: Mamma mín eftir Rakel Mjöll Guðmundsdóttur, Tirrí tirrí eftir Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur, Daginn eftir eftir Guðmund Lúðvík Þorvaldsson, Ég get ekki… eftir Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur, Syngjandi sæll og graður eftir...

Sjá meira

Einleikur í Jaðarleikhúsinu

Einleikurinn Superhero eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur verður frumsýndur í Jaðarleikhúsinu 1. júní næst komandi kl. 20.00. Sýnt varður í Tilrauna og listasmiðjunni Jaðarleikhúsinu að Miðvangi 41 í Hafnarfirði, (bak við Samkaup). Leikari er Erik Hakansson en leikið er á ensku. Superhero er dramatískur, súrealískur gamanleikur. Peter Brown er ungur maður sem stendur frami fyrir gríðarlega erfiðum aðstæðum. Hann leitar leiðsagna hjá ofurhetjunum sem hann kynntist í barnæsku.  Sýningar verða: 1. júní kl: 20.00 2. júní kl: 20.00 5. júní kl: 20.00 8. júní kl: 20.00Miðapantanir í síma 846-1351 eða á jadarleikhusid@hotmail.com Ath. Takmarkaður miðafjöldi....

Sjá meira

Hernám í Hrísey

Leikklúbburinn Krafla fagnar um þessar mundir 30 ára starfsafmæli en margt hefur verið brallað og margar góðar sýningar sýndar á þessum árum. Undanfarið hafa félagar í Kröflu æft verk sem þeir sömdu sjálfir í tilefni afmælisins. Leikstjóri er Linda María Ásgeirsdóttir. Verkið ber heitið Hernám í Hrísey og fjallar um eins og titillinn ber með sér hernámasárin í Hrísey, t.d. hvernig húsmæðurnar í Hrísey létu til sín taka og hvaða áhrif hernámið hafði á stúlkurnar og drengina. Leikritið er ekki sannsögulegt á nokkurn hátt en gæti þó endurspeglað á einhvern hátt hvernig lífið var á hernámsárunum. Verkið er því...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert