Skóli BÍL settur í ellefta sinn
Laugardaginn 9. júní var Leiklistarskóli Bandalagsins settur að Húsabakka í Svarfaðardal í ellefta sinn. Nemendur við skólann eru um 40 talsins hjá þremur kennurum, þeim Ágústu Skúladóttur, Agli Heiðari Antoni Pálssyni og Stephen Harper. Stephen þessi kemur frá Bretlandi og á myndinni hér til hægri má sjá grímur sem hann vinnur með í kennslunni. Nemendur eru allir mjög ánægðir með sína kennara og vænta mikils af náminu það sem eftir lifir vikunnar, en skólanum verður slitið á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Að venju voru nýjir nemendur busaðir af þeim eldri með miklum tilþrifum. Til vinstri má líta vaskan flokk eldri...
Sjá meira


