Hálsfesti Helenu aftur á svið
Fimm sýningar á verkinu Hálsfesti Helenu verða sýndar núna í haust en verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í vor. Sú fyrsta verður í kvöld, föstudaginn 28. september. Leikritið er eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette, en hún skrifaði verkið eftir að hafa dvalið um tíma í Líbanon árið 2000. Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en leikarar í sýningunni eru Edda Arnljótsdóttir, Arnar Jónsson og Guðrún Snæfríður Gísladóttir. Aðalpersóna leikritsins er Helena, kona frá norðlægu landi, sem er á heimleið af ráðstefnu í borg í Austurlöndum nær, þar sem uppbygging er hafin eftir langvarandi stríðshörmungar. Skyndilega ákveður hún að...
Sjá meira


