Author: lensherra

Ljósa- og hljóðvinnslunámskeið á Egilsstöðum

Í október verður boðið upp á tækninámskeið sem nýst geta vel leikfélögum á Austurlandi og nágrenni. Helgina 12. – 14. október verður haldið ljósanámskeið fyrir fólk sem vinnur í leikhúsi og öðrum sviðslistum. Kennari er Þorsteinn Sigurbergsson, námskeiðsgjald kr. 10.000.- og skráning hjá vegahusid@gmail.com  Helgina 26. – 28. október verður haldið hljóðvinnslunámskeið þar sem kennt verður á Pro Tools og fleiri græjur. Kennari er Páll Kristjánsson hljóðmaður og útsetjari. Alveg nauðsynlegt fyrir þá sem ætla að nota stúdíóið sem verður í nýja vHÚSINU í Sláturhúsinu. Námskeiðsgjald kr. 10.000.-, skráning hjá vegahusid@gmail.com  Námskeiðin eru haldið á vegum Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. ...

Sjá meira

Jólasveinar óskast

Nú fer að líða að jólum og undirbúningur jólaballa að hefjast. Við hjá Kraðaki ehf. leitum nú leikara til að manna jólaböll vetrarins. Við leitum að sjálfstæðu og hressu fólki til að leika jólasveina, Grýlu, Leppalúða og ýmislegt annað tilfallandi. Góð laun í boði.Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við okkur á kradak@kradak.is eða í símum 698-1293 Anna Begga / 699-3993 AndreaHeimasíða okkar mun opna innan skamms á...

Sjá meira

Margt smátt í Borgarleikhúsinu 6. október

Þann 6. október nk. verður Margt smátt, stuttverkahátíð Bandalags íslenskra leikfélaga, haldin í Borgarleikhúsinu. Í þetta skiptið sýna sex leikfélög alls 15 þætti og eru það allt ný íslensk verk, samin af fólki í leikfélögunum sjálfum. Það eru Freyvangsleikhúsið, Halaleikhópurinn, Hugleikur, Leikfélag Kópavogs, Leikfélag Mosfellssveitar og Leikfélagið Sýnir sem taka þátt í Mörgu smáu þetta árið. Hátíðin fer fram á Litla sviðinu og hefst klukkan 14:00. Miðaverð er aðeins 1.000 krónur. Þetta er í fjórða skipti sem Bandalag íslenskra leikfélaga og Borgarleikhúsið halda þess hátíð saman og endurspeglar hún hið merka starf sem  fer fram í ritun stuttra leikverka...

Sjá meira

Leikfélag Dalvíkur æfir Sölku Völku

Hjá Leikfélagi Dalvíkur standa nú yfir æfingar á Sölku Völku eftir sögu Halldórs Laxness í leikgerð Ingu Bjarnasonar og fleiri. Inga Bjarnason hefur verið ráðin leikstjóri að verkinu.  Þetta er viðamikil uppfærsla, en um 40 manns taka þátt í henni, konur, karlar og unglingar og börn. Í uppfærslunni er bæði tónlist og söngur. Það er svo sannarlega mikið líf og fjör í Ungó þessa dagana, leikhúsi þeirra Dalvíkinga, enda æft af kappi 6 daga vikunnar. Leikfélag Dalvíkur býður skólum á Eyjafjarðarsvæðinu sérstakt samstarf, þar sem 9. og 10. bekkingum gefst kostur á að sjá þessa uppfærslu í tengslum við...

Sjá meira

Hálsfesti Helenu aftur á svið

Fimm sýningar á verkinu Hálsfesti Helenu verða sýndar núna í haust en verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í vor. Sú fyrsta verður í kvöld, föstudaginn 28. september. Leikritið er eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld Kanada, Carole Fréchette, en hún skrifaði verkið eftir að hafa dvalið um tíma í Líbanon árið 2000.  Leikstjóri sýningarinnar er María Sigurðardóttir en leikarar í sýningunni eru Edda Arnljótsdóttir, Arnar Jónsson og Guðrún Snæfríður Gísladóttir. Aðalpersóna leikritsins er Helena, kona frá norðlægu landi, sem er á heimleið af ráðstefnu í borg í Austurlöndum nær, þar sem uppbygging er hafin eftir langvarandi stríðshörmungar. Skyndilega ákveður hún að...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert