Æfingar hafnar á Alina
Leikfélag Sauðárkróks er komið vel á veg með æfingar á splunku-, flunku-, glænýju barnaleikriti sem heitir Alína. Leikritið er eftir Skagfirðinginn Stefán Sturlu Sigurjónsson og Valgeir Skagfjörð semur tónlistina. Stefán leikstýrir hópnum sjálfur og færist mikið í fang því leikendur verða yfir 30 talsins, þar af þrennir tvíburar hvorki meira né minna. Leikritið fjallar um snótina Alínu sem missir fyrstu tönnina sína, en í staðinn fyrir að tannálfurinn komi með tannféð kemur tröllakóngurinn og rænir henni. Þannig lendir Alína í alskonar ævintýrum með tröllum, gnómum og álfum. Og hvernig skyldi það nú ganga allt saman? Hverjir eru vondir? Hverjir eru...
Sjá meira


