Author: lensherra

Danir í heimsókn hjá Leikfélagi Húsavíkur

Í október sl. kom danskt vina leikfélag, Bagsværd Amatør Scene í heimsókn til Leikfélags Húsavíkur. Bagsværd Amatør Scene og Leikfélag Húsavíkur hafa verið vinaleikfélög til margra ára og heimsótt hvort annað í gegnum árin. Í ár kom BAS með sýninguna Jøklen Brænder sem byggir á íslenskri þjóðsögu en handritið skrifaði Grete Thorulf. Anne Bille leikstýrði sýningunni, en hún er meðlimur í Bagsværd Amatør Scene.   Danirnir komu til Húsavíkur á laugardegi og strax á sunnudeginum var hafist handa við að koma sér fyrir í Hvalasafninu, en Samkomuhúsið okkar á Húsavík var upptekið vegna æfinga leikfélagsins á Íslansklukku Halldórs Laxness....

Sjá meira

Hauststarf Leikfélags Rangæinga

Á haustdögum hófst vetrarstarf hjá Leikfélagi Rangæinga. Verið er að hlúa ungliðunum og farið var af stað með starf með þeim.  Í gangi hefur verið leikþáttur um Gunnar á Hlíðarenda, og var hann sýndur á Héraðsvöku Rangæinga, í sögusetrinu á Hvolsvelli nú nýverið og víðar. Einnig standa yfir æfingar á leikritinu: Saga Sveins bónda Sveinssonar í Spjör og samsveitunga hans, eftir Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Unni Guttormsdóttur og er í leikstjórn Margrétar Tryggvadóttur. Þarna er á ferðinni farsi mikill sem fjallar um kotrössunga nokkra og annað heldra fólk í sveit nokkurri hér á landi fyrr á öldum. Í leikritinu...

Sjá meira

Lápur, Skrápur og jólakskapið í Skemmtihúsinu

Þann 1. desember næstkomandi verður frumsýtt glænýtt, íslenskt jólaleikrit með söngvum í Skemmtihúsinu við Laufásveg. Leikritið ber nafnið „Lápur, Skrápur og jólaskapið“. Höfundur verksins er Snæbjörn Ragnarsson en hann skrifar meðal annars Ævintýri Stígs og Snæfríðar í Stundinni okkar. Snæbjörn semur einnig tónlistina í verkinu ásamt Arngrími Arnarsyni. Leikstjórn er í höndum Önnu Bergljótar Thorarensen. Verkið fjallar um tvo Grýlusyni, þá Láp og Skráp. Þeir eru einu tröllabörnin í Grýluhelli sem hafa ekki enn komist í jólaskap. Grýla mamma þeirra rekur þá því af stað úr hellinum og bannar þeim að koma þangað aftur fyrr en þeir eru búnir...

Sjá meira

Stúfur heimsækir Leikfélag Akureyrar

Fjölskyldusýningin „Þú ert nú meiri jólasveinninn“ verður frumsýnd í Rýminu hjá LA  sunnudaginn 2. desember klukkan 14:30. Sýningin er samstarf Smilblik og LA. Hér birtist leikarinn, tenórinn, trúðurinn, heimsmaðurinn og eineltisbarnið Stúfur eins og við höfum aldrei séð hann áður; geislandi af hæfileikum, ljúfur, hrjúfur, spriklandi og sprellfjörugur. Jólasveinninn Stúfur sýnir og sannar í þessari sýningu að hann er enginn venjulegur jólasveinn. Hann hefur markvisst unnið í að útvíkka starfssvið sitt í von um fleiri „heilsárs“-verkefni, og hefur nú kynnt sér leikhúsið til hlítar; lært að syngja, dansa og segja sögur í mismunandi leikstílum – og síðast en ekki síst,...

Sjá meira

Siðmenningin og villimennskan

Fyrsti samlesturinn á leikritinu Vígaguðinn eftir franska leikskáldið Yasminu Reza fór fram í Þjóðleikhúsinu á dögunum. Verkið verður frumsýnt á Smíðaverkstæðinu í janúar í leikstjórn Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Leikrit þetta er nýjasta verk Reza sem er eitt þekktasta leikskáld samtímans. Mörgum er minnistætt leikrit hennar, Listaverkið, sem sló í gegn í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1997. Til marks um vinsældir Reza má geta þess að sýningaréttur á verkinu hefur þegar verið seldur til tæplega fimmtíu leikhúsa í Þýskalandi. Sýning Þjóðleikhússins á Vígaguðinum verður sú fyrsta á Norðurlöndunum en verkið hefur þegar verið selt til nokkurra leikhúsa þar. Verkið verður frumsýnt...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert