Vígaguðinn frumýnt á Smíðaverkstæðinu
Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 25. janúar, leikritið Vígaguðinn eftir franska leikskáldið Yasmina Reza. Leikstjóri er Melkorka Tekla Ólafsdóttir, þýðinguna gerði Kristján Þórður Hrafnsson og leikarar í sýningunni eru Baldur Trausti Hreinsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Friðrik Friðriksson og Þórunn Lárusdóttir. Tvenn hjón sem þekkjast ekki, foreldrar tveggja ellefu ára drengja ákveða að hittast eftir að annar drengurinn hefur slasað hinn með því að slá hann þegar þeir voru úti að leika sér. En þetta siðmenntaða fólk er ekki allt þar sem það er séð, frekar en aðrar manneskjur. Undir fáguðu yfirborði ólga hinar frumstæðu og dýrslegu hvatir. Árásargirni manneskjunnar virðast engin...
Sjá meira


