Author: lensherra

Útsýni, síðasta sýning í kvöld

Í kvöld er síðasta sýning á leikritinu Útsýni eftir Júlíu Hannam í Möguleikhúsinu kl. 20. Um er að ræða nýtt íslenskt leikverk sem er fyrsta leikrit höfundar í fullri lengd, en Júlía hefur skrifað sjö einþáttunga sem settir hafa verið á svið hjá Hugleik. Þeirra á meðal er Í öruggum heimi, sem valin var besta sýningin á stuttverkahátíðinni Margt smátt í Borgarleikhúsinu vorið 2006 af dómnefnd sem skipuð var Þorvaldi Þorsteinssyni og Þorsteini Bachmann.   Útsýni fjallar um samskipti tvennra hjóna, þar sem eiginmennirnir eru æskuvinir. Verkið er í tveimur þáttum og gerast þeir á heimili hjónanna Björns og...

Sjá meira

Pétur og úlfurinn snúa aftur

Hin sívinsæla brúðusýning Bernds Ogrodnik um Pétur og úlfinn er á leiðinni aftur á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu. Verkið byggir á tónlist og söguþræði rússneska tónskáldsins Sergei Prokofief en Bernd gerir brúður og stýrir þeim í þessari ægifögru og stórskemmtilegu sýningu sem sló í gegn hjá áhorfendum á öllum aldri í vor. Sýnt verður í Kúlunni, barnasviði Þjóðleikhússins á Lindargötu 7 en þar er sýningum á barnaleikritinu Góðu kvöldi eftir Áslaugu Jónsdóttur einmitt að ljúka nk. sunnudag. Fyrsta sýningin á Pétri og úlfinum verður 2. mars en verkið verður aðeins sýnt þá helgi og þá næstu. Að því loknu munu...

Sjá meira

Örleikritasamkeppnin Svartur hattur haldin

Úrslit hinnar árlegu örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins og Listaháskóla Íslands fyrir framhaldsskólanema fara fram á stóra sviði Þjóðleikhússins næstkomandi laugardagskvöld, 1. mars kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Nokkrir tugir verka bárust í samkeppnina, sem var opin öllum framhaldsskólanemum á landinu, en fimm verk munu keppa til úrslita. Örleikritasamkeppnin er nú haldin í fimmta sinn, en að þessu sinni er sérstaklega skemmtilegt að geta þess að framlög bárust frá öllum landshlutum. Verkin sem komust í úrslit heita Gáfnafar í hættu eftir Árna Arason, Afsakið er þessi stóll upptekinn? eftir Guðrúnu Sóleyju Sigurðardóttur, Svartur hattur eða Síðasta tækifærið eftir Adam...

Sjá meira

Alþjóðlega leiklistarhátíðin Lókal haldin í fyrsta sinn

Leiklistarhátíðin Lókal verður haldin dagana 5. –  9. mars nk.  Markmiðið með hátíðinni er að kynna Íslendingum samtímaleikhús frá Evrópu og Bandaríkjunum og tefla um leið fram nýjum verkum íslensks leikhúsfólks.  Í fyrstu atrennu verður boðið upp á alls sjö leiksýningar. Opnunarsýningin á miðvikudeginum er sýning NEW YORK CITY PLAYERS, Ode To the Man Who Kneels. Þetta er nýjasta verk NYC Players, með leikskáldið og leikstjórann Richard Maxwell í fararbroddi, en það var frumsýnt í New York í nóvember 2007 og fékk frábærar viðtökur.  „Á síðustu tíu árum hefur sýnt sig að Richard Maxwell er einn fárra leikhúsmanna í...

Sjá meira

Æfingar í fullum gangi á Dubbeldusch hjá LA

Hjá LA standa nú yfir æfingar á nýju íslensku leikriti, Dubbeldusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson. Hér er á ferðinni ljúfsárt verk um mann sem stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þrjátíu árum en nú bankar fortíðin upp á. Sýningin verður frumsýnd í Rýminu á Akureyri 13. mars. Björn Hlynur leikstýrir verkinu sjálfur en Hilmar Jónsson leikur aðalhlutverkið en hann hefur ekki leikið að ráði á sviði síðan blómlegur leikstjórnarferill hans hófst. Nokkrum sinnum á lífsleiðinni gerast atburðir í lífi okkar sem breyta öllu. Í kvöld kemur einkasonurinn í sumarbústað fjölskyldunnar og kynnir nýja unnustu fyrir foreldrum sínum. Smátt og...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert