Author: lensherra

Pétur Gautur í víking að nýju

Sýning Þjóðleikhússins á Pétri Gaut eftir Henrik Ibsen, í leikstjórn og leikgerð Baltasars Kormáks, verður einn af hápunktum menningarhátíðarinnar Iceland on the Edge í Brussel nú í lok febrúar. Hátíðin verður sett þriðjudaginn 26. febrúar og stendur til 15. júní en sýningar á Pétri Gaut verða 29. febrúar og 1. mars. Fyrrgreind menningarhátíð mun standa í um fjóra mánuði en hún er unnin í samstarfi við Bozar, stærstu menningar- og listamiðstöð Belgíu og Ancienne Belgique, eitt þekktasta tónlistarhús Brussel á sviði popp- og rokktónlistar. Hátíðin er mikil að umfangi og hefur undirbúningur hennar staðið í um tvö ár. Kvikmyndir...

Sjá meira

Jörundur í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit frumsýnir söng- og gleðileikinn Þið munið hann Jörund eftir Jónas Árnason, föstudaginn 22. febrúar. Allir þekkja ævintýrið um Jörund sem kom hingað til Íslands og gerðist þar yfirvald nánast upp á sitt eindæmi. Tónlist verksins hefur verið gerð ódauðleg í gegnum tíðina, Þrjú á palli spiluðu og sungu undir sýningunni í fyrstu uppfærslu hennar árið 1970 og í seinni tíð hefur hljómsveitin Papar tekið tónlistina upp á sina arma. Í Freyvangi eru einnig valdir menn og konur í hverju rúmi. Hermann Arason og Eiríkur Bóasson, gamalreyndir tónlistarmenn, ganga fyrir vöskum hópi hljómlistarfólks. Þá er leikaraliðið ekki...

Sjá meira

Tveggja þjónn á Siglufirði

Leikfélag Siglufjarðar frumsýnir á morgun, föstudaginn 22. febrúar, ærslafulla gamanleikinn Tveggja þjónn eftir Carlo Goldoni í leikstjórn Elvars Loga Hannessonar. Hér er á ferðinni bráðfjörugur ítalskur leikur sem fjallar um þjóninn Eldibrand sem lendir í því að þurfa að þjóna tveimur herrum samtímis.   Frumsýning er sem fyrr segir föstudaginn 22. febrúar kl. 20:30 í Bíó Café og önnur sýning laugardaginn 23. febrúar kl. 20:00. Næstu sýningar verða föstudaginn 29. febrúar kl. 20:30 og fimmtudaginn 6. mars verður barna og unglingasýning kl. 20:00. Gert er ráð fyrir fleiri sýningum en þær verða auglýstar síðar. Leikarar eru 12 talsins en...

Sjá meira

Frumsýning í Aratungu

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir 22. febrúar í Aratungu gamanleikinn Leynimel 13. eftir Þrídrang. Alls taka 13 leikarar og fjölmennt lið aðstoðarmanna þátt í sýningunni. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson.   Leikurinn fjallar um klæðskerameistara nokkurn sem situr uppi með allskyns lýð eftir að húsnæðisnefnd borgarinnar setur lög þess efnis að allir sem hafa yfir stóru húsnæði að ráða skulu taka inn á sig húsnæðislaust fólk.  Ekki bætir úr skák að tengdamamma hans er hin mesta gribba og vill hann gera allt til þess að losna við hana. Ungmennafélag Biskupstungna verður 100 ára nú í apríl og verður af því...

Sjá meira

Líkaminn í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 21. febrúar gefst áhugasömum kostur á að sjá nokkar sýningar ungs fólks sem allar tengjast líkamanum með einum eða öðrum hætti. Sýningarnar eru afrakstur samstarfsverkefnis Borgarleikhússins, LHÍ og Hins Hússins. Verkin fjalla öll að einhverju leyti um líkamann. Hóparnir vinna undir handleiðslu útskriftarnema Leiklistardeildar LHÍ en aðrir 2. árs nemar skólans munu einnig sína verk á kvöldinu sem unnin eru í tengslum við námskeið sem fjallar um líkamann í sviðslistum. 10. bekkur Austurbæjarskóla og nemendur af listasviði FB sýna verk sem urðu hlutskörpust í hugmyndasamkeppni Borgarleikhússins “Viltu láta rödd þína heyrast?”. 3. árs leikaranemar munu sýna dansleikhúsverk undir...

Sjá meira

Opnunartímar

Mánudagur - Föstudagur: 8:45 — 12:15, Laugardagur - Sunnudagur: Lokað

Nýtt og áhugavert